Markaðurinn
Grænmetiseldhúsið með Peter De Wandel í Garra
Fimmtudaginn 29.janúar klukkan 14 fer fram spennandi kynning í Garra þar sem Peter De Wandel matreiðslumeistari hjá Ardo kynnir nýjungar og kemur með hugmyndir að nútímalegum grænmetisréttum fyrir fagfólk.
Peter ólst upp við matargerð þar sem móðir hans rak lítið heimaveitingahús og eldaði úr hráefnum úr eigin garði. Þar kviknaði áhugi Peter á mat og eldamennsku.
Eftir nám í einum virtasta matreiðsluskóla Belgíu hóf Peter störf á veitingastöðum og í veisluþjónustu. Ferill hans þróaðist síðan í átt að ráðgjöf og hugmyndavinnu fyrir matvælafyrirtæki.
Í dag starfar Peter hjá Ardo, þar sem hann þróar uppskriftir og hugmyndir. Hann starfar náið með fagfólki um allan heim til að veita innblástur, deila þekkingu og lausnum.
Upplýsingar um námskeiðið:
Fimmtudagur 29. Janúar
Kl. 14:00–16:00
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík – 4. Hæð
Áhersla á grænmetisrétti og vörur frá Ardo
Fyrir matreiðslufólk, nema og annað fagfólk í veitingagerð
Námskeiðið fer fram á ensku
Takmarkað sætaframboð
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði







