Keppni
Andrés Björgvinsson og Vigdís Mi Diem Vo sigruðu í Eftirrétti og Konfektmola ársins 2025
Garri hélt keppnina Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins þriðjudaginn 28. október á La Primavera í Hörpu. Þessar keppnir hafa fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af sögu og þróun íslenskrar matreiðslu. Keppendur sýndu einstakan sköpunarkraft og náðu að fanga þema ársins sem var karnival á skemmtilegan hátt.
Keppnin var haldin þegar fyrsti snjór vetrarins skall á með tilheyrandi samgönguerfiðleikum. Þrátt fyrir það mættu keppendur glaðir, ákveðnir og tilbúnir að sýna sitt besta, sem þeir gerðu svo sannarlega.
Dómarar voru sammála um að keppnin heldur áfram að vaxa og hafi verið einstaklega glæsileg í ár, þar sem lítið bar á milli í toppsætunum fimm.
Sjá einnig: Þessir fagmenn dæma Eftirrétt ársins og Konfektmola ársins
Það vakti einnig gleði að sjá hversu margir nemendur tóku þátt, en þeir voru yfir helmingur keppenda í ár, fullir af metnaði, nýjum hugmyndum og eldmóði.
Skylduhráefni fyrir Eftirréttur ársins & Konfektmoli ársins eru þrjú
- Cacao Barry Lactée Supérieure 38% – Mjólkursúkkulaði sem er einstaklega fjölhæft í notkun.
- Capfruit Fruit Purée d’Ananas – Frosið ananasmauk sem inniheldur engin aukaefni, hvorki litar- né bragðefni, aðeins hreinan, náttúrulegan ávöxt. Bjartur litur og sætt bragð.
- NOROHY Vanilla Beans Paste – Úr hreinum vanillubaunum frá Madagaskar. Djúpt, ilmandi bragð. Engin aukefni eða bragðbætiefni.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirdómari í Eftirréttur ársins og Andrés Björgvinsson verðlaunahafi í eftirréttur ársins 2025
Sigurvegari í Eftirréttur ársins árið 2025
1. sæti Andrés Björgvinsson
2. sæti Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir sem jafnframt fékk nemaverðlaun Garra
3. sæti Gunnar Georg Gray

Axel Þorsteinsson dómari, Vigdís Mi Diem Vo sigurvegari í Konfektmola ársins 2025 og Ásgeir Sandholt dómari
Sigurvegari í Konfektmoli ársins 2025
1.sæti Vigdís Mi Diem Vo
2.sæti Bianca Tiantian Zhang
3.sæti Filip Jan Jozefik
Nemaverðlaun Garra í Konfektmola ársins 2025 fékk Ísabella Karlsdóttir
Sigurvegarar í Eftirréttur ársins og Konfektmola ársins hlutu í verðlaun námskeið hjá Cacao Barry og í nemaverðlaun er vegleg útttekt hjá Garra. Cacoa Barry hefur áratuga reynslu af því að vinna úr bestu kakóbaunum heims og er þekkt fyrir að sameina hefðbundna súkkulaðigerð við nýjustu tækni.
Markmið Cacao Barry er að veita fagfólki hráefni sem gerir þeim kleift að skapa einstaka og skapandi matarupplifun. Cacao Barry leggur áherslu á sjálfbæra ræktun og vinnur náið með bændum um allan heim til að styðja við sjálfbæra ræktun, auka lífsgæði kakóbænda og tryggja rekjanleika vörunnar.
Myndir: garri.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn1 dagur síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn2 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Markaðurinn6 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí






