Viðtöl, örfréttir & frumraun
Matarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
Um fimmtíu framleiðendur hvaðanæva af landinu koma saman í Hörpu um helgina þegar Matarmarkaður Íslands fer fram dagana 14. og 15. mars. Markaðurinn verður opinn gestum frá klukkan 11 til 17 bæði laugardag og sunnudag og þar gefst fólki tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íslenskum matvælum og sérvöru beint frá framleiðendum.
Undirbúningurinn hefst þó fyrr. Framleiðendur byrja að setja upp bása sína eftir klukkan 14 á morgun föstudag og þá skapast strax líf og fjör í Hörpu þegar tugir framleiðenda koma sér fyrir með vörur sínar.
Á markaðnum verður að finna fjölbreytt úrval matvara og sælgætis frá ólíkum landshlutum. Meðal þess sem gestir geta smakkað eða keypt eru handgerð páskaegg frá Siglufirði með sítrónukaramellum, argentínskar smákökur með dulce de leche, grænlenska grálúðu og reykt þorskhrogn frá Höfn í Hornafirði.
Þurrkuð lambahjörtu kynnt í fyrsta sinn
Eitt það sem vekur sérstaka athygli er ný vara frá Snæfellsnesi, þurrkuð lambahjörtu, sem kynnt verða í fyrsta sinn á Íslandi. Á bak við vöruna standa Katrín Lilja Kristinsdóttir og Alexander Scheving Haraldsson sem reka verkefnið Hert Hjarta.

Alexander Scheving Haraldsson og Katrín Lilja Kristinsdóttir kynna nýja vöru sína, þurrkuð lambahjörtu frá Hert Hjarta, á Matarmarkaði Íslands í Hörpu.
Þau hófu tilraunir með vöruna árið 2024 og hafa síðan þróað næringarríkt snakk úr íslenskum lambahjörtum. Á matarmarkaðnum verða þau með sýnishorn í tveimur bragðtegundum, annars vegar með teriyaki bragði og hins vegar kryddað með villtum íslenskum matjurtum.
Handgerð páskaegg frá Siglufirði
Einnig verða hjónin Andri Þór Gíslason og Kristbjörg Bjarnadóttir frá fjölskyldufyrirtækinu SMAKK á Siglufirði með bás á markaðnum. Andri Þór er matreiðslumaður að mennt.
Þau framleiða handgert konfekt og sælgæti og koma með súkkulaðistykki, páskaegg og súkkulaðihúðaðar möndlur.
Páskaeggin þeirra eru fyllt með handgerðu konfekti, möndlum og karamellum. Þar á meðal eru sítrónukaramellur sem innihalda bæði sítrónusafa og sítrónubörk, en framleiðendurnir leggja sérstaka áherslu á að nota náttúruleg bragðefni í vörur sínar.
Matarparadís fyrir sælkera
Matarmarkaður Íslands hefur á undanförnum árum orðið vinsæll vettvangur fyrir smáframleiðendur til að kynna nýjar vörur og hitta neytendur. Um helgina gefst gestum tækifæri til að smakka, kynnast og kaupa matvæli beint frá framleiðendum víðs vegar að af landinu.
Hægt er að fylgjast með frekari upplýsingum á Facebooksíðu Matarmarkaðar Íslands.
Myndir: Facebook / Matarmarkaður Íslands
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn7 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina
-
Frétt11 klukkustundir síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki














