Keppni
Leita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
Umsóknarfrestur í íslensku undankeppni Arctic Young Chef hefur verið framlengdur til 1. september næstkomandi. Kokkar og matreiðslunemar, 24 ára og yngri, eru hvattir til að skrá sig til þátttöku.
Landskeppni Íslands fer fram í Reykjavík laugardaginn 5. september. Allt að átta keppendur verða valdir til þátttöku og munu þeir etja kappi um að verða fulltrúi Íslands í úrslitakeppni Arctic Young Chef.
Sigurvegari íslensku undankeppninnar hlýtur 100 þúsund krónur í verðlaun og tryggir sér jafnframt sæti í úrslitakeppninni. Þar verður keppt um 250 þúsund króna aðalvinning og titilinn Arctic Young Chef.
„Við viljum ná til sem flestra ungra kokka um allt land, bæði þeirra sem eru í námi og þeirra sem þegar eru byrjaðir að vinna á veitingastöðum.
Þetta er einstakt tækifæri til að keppa á alþjóðlegum vettvangi, kynnast jafnöldrum frá hinum Norðurlöndunum og sýna hvað íslensk matreiðsla og íslenskt hráefni hafa upp á að bjóða,“
segir Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumeistari og verkefnastjóri Arctic Young Chef á Íslandi.
Opið faglærðum kokkum og matreiðslunemum
Þátttaka er opin faglærðum kokkum og matreiðslunemum sem eru 24 ára og yngri og búsettir á Íslandi. Allt að átta umsækjendur verða valdir til að taka þátt í landskeppninni.
Skráning og nánari upplýsingar um þátttökuskilyrði má finna á ayc.fo hér. Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026.
Arctic Young Chef er alþjóðleg matreiðslukeppni fyrir unga kokka frá Íslandi, Færeyjum, Noregi og Grænlandi. Keppnin er skipulögð undir merkjum norræna samstarfsverkefnisins NORA og var sett á laggirnar til að vekja athygli á hæfileikum ungra kokka á Norður-Atlantshafssvæðinu og efla notkun staðbundinna hráefna.
Landskeppni fer fram í hverju þátttökulandi og mætast sigurvegararnir að lokum í sameiginlegri úrslitakeppni.
Hægt er að skoða yfirlit yfir fréttir af Arctic Young Chef með því að smella hér.
-
Frétt7 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt2 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku




