Keppni
Skráning hafin í fyrstu kokteilakeppni ársins

Frá úrslitum Bombay keppninnar um Bláa Safírinn í fyrra. Frá vinstri eru Hrafnkell Ingi Gissurarson sem hafnaði í 3. sæti, Daníel Oddsson sigurvegari keppninnar og Dagur Jakobsson sem endaði í 2. sæti.
Fyrsta kokteilakeppni ársins er gengin í garð þegar Bombay keppnin um Bláa Safírinn snýr aftur. Keppnin hefur fest sig í sessi sem einn af mikilvægustu viðburðum ársins fyrir íslenska barþjóna.
Fyrirkomulag keppninnar byggir á svokallaðri walk-around forkeppni þar sem dómarar fara á milli staða dagana 12. og 13. janúar og meta drykki keppenda á heimavelli þeirra. Tíu bestu drykkirnir komast áfram í úrslit en dagsetning og staðsetning úrslitakeppninnar verða auglýst síðar.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu keppendur. Þar má nefna ferðavinning að andvirði 100.000 króna, vörur frá Bombay Sapphire og glæsilegan eignabikar sem fylgir titlinum Blái Safírinn.
Keppnin er með frjálsu þema en skilyrði er að hver drykkur innihaldi að minnsta kosti 3 cl af Bombay vöru. Til að taka þátt þurfa keppendur að fylla út skráningarform sem er aðgengilegt á bar.is. Þar er einnig að finna enska útgáfu keppnislýsingar og reglna. Að auki þurfa þátttakendur að deila mynd af drykknum ásamt stuttum texta á Instagram, tagga Barþjónaklúbbinn undir notendanafninu @bartendericeland og nota myllumerkið #bombaysapphire.
Skráningarfrestur er til og með 11. janúar og því ljóst að barþjónar sem hyggjast taka þátt þurfa að bregðast skjótt við.
Mynd: Ómar Vilhelmsson
-
Keppni3 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt5 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn2 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?



