Viðtöl, örfréttir & frumraun
Gunnar Karl og Poul Andrias leiða Michelin veislu í Færeyjum
Á Paz í Færeyjum, tveggja stjörnu Michelin-veitingastað, verður í september boðið upp á sjaldséðan viðburð þar sem tveir af fremstu kokkum Norðurlanda sameina krafta sína.
Poul Andrias Ziska hefur boðið íslenska matreiðslumanninum Gunnari Karli Gíslasyni í einstakt samstarf þar sem þeir munu skapa 14 rétta matseðil sem verður aðeins í boði tvö kvöld, þann 5. og 6. september, á Paz í Þórshöfn.
Gunnar Karl er eigandi og yfirmatreiðslumaður á Dill í Reykjavík, fyrsta íslenska veitingastaðnum til að hljóta Michelin-stjörnu. Dill hefur einnig hlotið hið græna laufið eftirsóknarverða fyrir að stuðla að sjálfbærni á veitingastað sínum. Gunnar Karl hefur mótað og þróað nútíma íslenska matargerð og er víða talinn brautryðjandi í veitingageiranum hér á landi.
Poul Andrias Ziska, eigandi og yfirmatreiðslumaður Paz, hefur á stuttum tíma leitt veitingastaðinn til mikillar velgengni með tveimur Michelin-stjörnum, þrátt fyrir að staðurinn hafi einungis verið opinn í nokkra mánuði. Hann var áður yfirmatreiðslumaður á hinum víðfræga Koks, sem náði frábærum árangri bæði í Færeyjum og í Grænlandi.
Matseðillinn sem þeir Gunnar Karl og Poul Andrias skapa mun aðeins fást þessi tvö kvöld. Hann byggður á einkennisréttum hvors þeirra um sig en einnig nýjum réttum sem sækja innblástur í heimahagana.
Einungis verður pláss fyrir 30 gesti hvort kvöld. Ógleymanleg upplifun fyrir sælkera sem leita að Michelin töfrum.
Staðsetning: Paz, Doktara Jakobsensgøta 14
Borðapantanir: paz.fo
Myndir: aðsendar
-
Keppni4 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn4 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Markaðurinn6 klukkustundir síðanPierre Koffmann heimsótti Finnsson í Kringlunni – Myndaveisla
-
Markaðurinn18 klukkustundir síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM








