Nemendur & nemakeppni
Verknámshúsið iðar af lífi – Opið hús í MK 7. mars
Laugardaginn 7. mars næstkomandi verður opið hús í Menntaskólanum í Kópavogi þar sem skólinn verður kynntur fyrir verðandi nemendum og öðrum áhugasömum. Opið verður frá klukkan 11:00 til 14:00 og eru allir velkomnir að líta við.
Verknámshúsið verður iðandi af lífi eins og jafnan og hver deild stendur fyrir sínum eigin viðburði. Gestir fá þannig tækifæri til að kynna sér fjölbreytt námsframboð skólans, hitta kennara og nemendur og fá innsýn í daglegt starf innan veggja skólans.
Opna húsið er kjörið tækifæri fyrir framtíðarnemendur að skoða aðstæður, spyrja spurninga og átta sig á námsleiðum, en jafnframt eru fyrrverandi nemendur og aðrir velunnarar skólans hvattir til að mæta og rifja upp kynni.
Vonast er til að sem flestir sjái sér fært að heimsækja skólann og kynna sér það öfluga starf sem þar fer fram.
Mynd: mk.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun24 klukkustundir síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn7 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt3 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
-
Keppni7 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




