Markaðurinn
Uppskrift: Kjúklingalasagna með rjómaosti og spínati
Ef þú ert að leita að nýstárlegri útgáfu af klassísku lasagna, þá er kjúklinga lasagna fullkomið val! Þetta lasagna er einstaklega ljúffengt og hentar bæði fyrir fjölskylduna og matarboðið.
Kjúklingalasagna með rjómaosti og spínati
(fyrir 5)
100 gr ferskt spínat
700 gr úrbeinaður kjúklingur, læri eða bringur
1 stór laukur
2 msk tómatpaste
1 lítil krukka rautt pestó
400 gr hakkaðir tómatar
1 dós rjómaostur með tómötum og basil frá Gott í matinn
1 tsk kjúklingakraftur
1 stór dós Kotasæla
Lasanja plötur
Olía til steikingar
Salt, pipar, paprikuduft og ítölsk hvítlauksblanda
Rifinn ostur
Aðferð:
- Hitið ofn í 170 gráður með blæstri. Byrjið á að steikja spínatið á pönnu upp úr smá olíu, kryddið með salti og pipar. Færið yfir á eldhúspappír þegar steikt til að taka vökvann úr því.
- Skerið laukinn smátt og kjúklinginn í litla bita, steikið kjúklinginn á pönnu og kryddið með salti, pipar, paprikudufti og ítalskri hvítlauksblöndu eða öðru góðu kryddi. Bætið lauknum út á og steikið áfram þar til laukurinn mýkist.
- Bætið nú tómatpaste, pestó, hökkuðum tómötum, rjómaosti og kjúklingakrafti út á pönnuna og leyfið að malla aðeins á vægum hita. Smakkið til með kryddi.
- Takið nú spínatið og saxið það aðeins niður. Hrærið það svo saman við Kotasæluna.
- Setjið nú lasanjað saman. Setjið smá af rauðu sósunnu (kjúklingnum) í botninn á fati, leggið lasanja blöð ofan á og smyrjið svo kotasælublöndu þar yfir. Endurtakið þetta þar til blandan er búin, endið á rauðri sósu og rifnum osti. Ég náði fimm lögum úr þessari uppskrift.
- Bakið í ofni í 45 mínútur eða þar til lasanjablöðin hafa bakast í gegn. Ef þið notið ferskar plötur má stytta bökunartímann í 25 mínútur.
Nánar á gottimatinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Frétt4 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu




