Borð Íslenska landsliðsins. Mynd: Jóhannes Geir Númason
Verðlaunaafhending Heimsmeistarakeppninnar í kjötskurði (World Butchers Challenge – WBC) fór fram á galakvöldverði í Memorial Auditorium ráðstefnuhöllinni í Sacramento í kvöld sunnudaginn 4. september.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Memorial Auditorium ráðstefnuhöllinni í Sacramento. Til gamans þá fór fram vígsla ríkisstjórans Arnold Schwarzenegger í Memorial Auditorium höllinni árið 2007. Mynd: MemorialAuditorium.com
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti – Þýskaland
2. sæti – Ástralía
3. sæti – Nýja Sjáland
10. sæti – Ísland
1. sæti – Þýskaland. Mynd: worldbutcherschallenge.com
2. sæti – Ástralía. Mynd: worldbutcherschallenge.com
3. sæti – Nýja Sjáland. Mynd: worldbutcherschallenge.com
All star team:
Breaking / bone – Írland
Trimming / slicing – Ítalía
Value adding – Þýskaland
Value adding – Bretland
Display Garnish – Ástralía
Heimsmeistarakeppnin í kjötskurði fór fram í Sacramento í Bandaríkjunum í NBA höllinni Golden 1 Center, laugardaginn 3. september s.l. Íslenska landslið kjötiðnaðarmanna stóðu sig frábærlega og var þetta í fyrsta sinn sem að landsliðið keppti á svona stóru móti. 13 þjóðir tóku þátt í keppninni og var Ísland eina Norðulandaþjóðin sem tók þátt.
Þær þjóðir sem kepptu voru:
Ástralía
Bandaríkin
Brasíl
Kanada
Frakkland
Þýskaland
Bretland
Ísland
Ítalía
Írland
Nýja Sjáland
Portúgal
Wales
Allar þjóðir fengu ½ naut, ½ svín, 1/1 lamb og 5 kjúklinga til að vinna með. Liðin unnu þessa skrokka á 3 og hálfum tíma til að búa til fjölbreyttar vörur, girnilegar vörur og auðvitað góðar vörur.
Dómararnir dæmdu samvinnuna, vinnubrögðin, hreinlæti, nýtingu og frumlegheit. Þemað hjá landsliðinu var Eldgosið í Meradölum. Dómari fyrir hönd Íslands var Stefán Einar Jónsson frá Norðlenska.
Friðrik Þór Erlingsson, fyrirliði landsliðsins í keppninni. Mynd: worldbutcherschallenge.com
Íslenska landsliðið
Landslið kjötiðnaðarmanna skipa, (fullt nafn, vinnustaður og hlutverk hvers og eins í landsliðinu):
Friðrik Þór Erlingsson, Kjöthúsinu og fyrirliði
Kristján Hallur Leifsson, Kjötkompaníið og útlitshönnuður kjötborðs
Jóhann Sigurbjarnarson, Kjötkompaníinu og fyllingar og skreytingar
Róbert Ragnar Skarphéðinsson, Norðlenska Húsavík og úrbeinari
Jón Gísli Jónsson, Kjötkompaníinu og úrbeinari í liðinu
Bjarki Freyr Sigurjónsson, Sláturfélag Suðurlands og pylsugerðarmaður
Á síðustu mínútum
Íslenska liðið að leggja lokahönd á sýningarborðið í keppninni.
Upptaka frá World Butchers Challenge
Hægt er að horfa á upptöku frá heimsmeistaramótinu í meðfylgjandi myndbandi (hefst eftir 34 mínútur):