Markaðurinn
Fullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur

Hermann Svali Björgvinsson, kjötiðnaðarmaður og fyrirliði landsliðs kjötiðnaðarmanna, var kennari námskeiðsins.
Mynd úr einkasafni.
Landslið kjötiðnaðarmanna hélt vel heppnað pylsugerðarnámskeið á vegum Iðunnar fræðsluseturs, sem haldið var í kjötdeild Hótel og matvælaskólann í Kópavogi nú á dögunum undir handleiðslu Hermanns Svala Björgvinssonar, kjötiðnaðarmanns og fyrirliða landsliðsins. Mikill áhugi var á námskeiðinu, fullt varð út úr dyrum og margir komust ekki að og skráðu sig á biðlista fyrir næsta námskeið.
Fjölbreyttur hópur þátttakenda mætti til að fræðast um þessa sívinsælu matargerð. Allt landsliðið tók þátt í kennslunni ásamt Kristjáni Leifssyni, kjötiðnaðarmanni og kennara við skólann, sem aðstoðaði við framkvæmd námskeiðsins.
Á námskeiðinu fengu þátttakendur verklega innsýn í allt ferlið við pylsugerð, allt frá vali á kjöti og réttu fituhlutfalli yfir í kryddun, sprautun í garnir og rétta eldun. Sérstök áhersla var lögð á fagleg vinnubrögð og að þátttakendur gætu yfirfært þekkinguna beint yfir í eigið eldhús. Engin fyrri reynsla var nauðsynleg, aðeins áhugi á góðu hráefni og vandaðri matargerð.
Markmið námskeiðsins var að þátttakendur öðluðust hagnýta þekkingu og færni til að útbúa pylsur frá grunni heima hjá sér. Farið var yfir meðhöndlun hráefnis, hlutverk salts og próteina í farsgerð, hitastýringu og jafnvægi bragða. Að námskeiði loknu höfðu þátttakendur sett saman eigin uppskriftir og öðlast færni til að fullvinna gæða pylsur í eigin eldhúsi.
Jóhannes Geir Númason, kjötiðnaðarmeistari, á heiðurinn af meðfylgjandi myndum sem birtar eru með leyfi hans.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Markaðurinn4 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Markaðurinn3 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins













