Nemendur & nemakeppni
Landslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina
Opnað verður fyrir gesti í Menntaskólanum í Kópavogi á morgun, laugardaginn 7. mars, þegar skólinn heldur opið hús frá klukkan 11 til 14. Þar verður meðal annars hægt að kynna sér nám og störf í kjötiðnaði, en fulltrúar úr landsliði kjötiðnaðarmanna verða á staðnum og segja frá faginu fyrir áhugasama gesti.
Sjá einnig: Verknámshúsið iðar af lífi – Opið hús í MK 7. mars
Markmiðið með kynningunni er að veita innsýn í starf kjötiðnaðarmanna, bæði hvað varðar námið sjálft og þau fjölbreyttu störf sem bíða þeirra sem velja þessa leið. Gestum gefst tækifæri til að spjalla við fagfólk, fá upplýsingar um námið og fræðast nánar um kjötiðnaðinn.
Allir sem hafa áhuga á faginu eru hvattir til að líta við og kynna sér starfið af eigin raun.
Mynd: facebook / Landslið Kjötiðnaðarmanna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar5 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




