Keppni
Benedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar.
Mynd: úr einkasafni
-
Guðmundur Bílddal.
Mynd: úr einkasafni
Íslenskir kjötiðnaðarmenn láta til sín taka á alþjóðlegum vettvangi um helgina þegar tveir fulltrúar úr Landsliði kjötiðnaðarmanna keppa í Butcher Wars í Stuttgart.
Keppnin fer fram dagana 11. og 12. apríl í tengslum við BBQ Days hátíðina, þar sem leitað er að fremsta kjötiðnaðarmanni Evrópu sem og efnilegustu nýliðunum í greininni. Þeir Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar og Guðmundur Bílddal keppa fyrir Íslands hönd og fá þar tækifæri til að sýna kunnáttu sína á sviði fyrir framan áhorfendur og myndavélar, en keppninni er einnig streymt á samfélagsmiðlum.
Verkefni keppenda er krefjandi og tíminn naumur. Þeir þurfa að úrbeina og skera svínahrygg, setja kjötið fram á borð á faglegan hátt og ganga frá framsetningu og skreytingu, allt innan 25 mínútna. Áhersla er lögð á nákvæmni og vinnubrögð í framsetningu.

Góður hópur íslenskra kjötiðnaðarmanna er staddur í Stuttgart um helgina og heimsótti F. Dick verksmiðjuna þar sem Marcus Kohler tók vel á móti hópnum.
Mynd: Facebook / Landslið Kjötiðnaðarmanna
Keppnin er tvískipt, annars vegar er keppt um titilinn „Overall Champion“ og hins vegar „Young Champion“ fyrir keppendur undir 23 ára aldri. Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin, þar sem sigurvegari fær 500 evrur, annað sætið 300 evrur og það þriðja 200 evrur.
Strangar reglur gilda um öryggi og vinnubrögð. Keppendur þurfa meðal annars að mæta með eigin verkfæri og hlífðarbúnað, þar á meðal keðjuhanska og hlífðarbúnað fyrir skurðvinnu og tryggja að öll vinnsla fari fram innan keppnistímans.
Þátttaka Íslands í keppninni undirstrikar vaxandi áhuga og metnað íslenskra kjötiðnaðarmanna á alþjóðlegum vettvangi, þar sem fagmennska og handverk eru í forgrunni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn6 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn6 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Markaðurinn5 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanYfir 166 þúsund krónur á mann fyrir veitingar á heimaleik Fulham
-
Frétt4 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt





