Nemendur & nemakeppni
Þessi keppa til úrslita í Nemakeppni Kornax í bakstri 2015

Keppendur í úrslitakeppni í Nemakeppni Kornax í bakstri 2015
F.v. Birgir Þór Sigurjónsson, Íris Björk Óskarsdóttir, Anna María Gudmundsdóttir og Gunnlaugur Arnar Ingason
Forkeppni Nemakeppni Kornax 2015 var haldin haldin 26. og 27. febrúar s.l. í bakaradeild Hótel og matvælaskólans í Kópavogi þar sem ellefu bakarnemar kepptu.
Fjórir efstu komust áfram í úrslitakeppnina en það eru þau (raðað í stafrófsröð)
- Anna María Gudmundsdóttir – Mosfellsbakarí
- Birgir Þór Sigurjónsson – Passion
- Gunnlaugur Arnar Ingason – Kökulist
- Íris Björk Óskarsdóttir – Sveinsbakarí
Í dag og á morgun fer fram úrslitakeppnin í Nemakeppni Kornax í bakstri 2015 þar sem þau fjögur verða með þéttskipaða keppnisdagskrá, baka brauðtegundir, vínarbrauð, útbúa borðskreytingu úr ætu hráefni svo fátt eitt sé nefnt, en keppnisreglur og nánari lýsingu á keppninni er hægt að lesa með því að
smella hér.
Dómarar í keppninni eru þrír og búa allir yfir mikilli fagþekkingu og reynslu, en þau eru:
- Daníel Kjartan, Bakari ársins 2013 og yfirdómari
- Helgi Freyr Helgason bakarameistari, Kruðerí Kaffitárs
- Hrafnhildur A K Sigurðardóttir, bakaraprinsessa
Mynd: Ásgeir Þór Tómasson
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt4 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn1 dagur síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg



