Markaðurinn
ÓJ&K – ÍSAM opnar nýja vefverslun fyrir viðskiptavini
ÓJ&K – ÍSAM hefur opnað nýja og endurbætta vefverslun sem ætlað er að gera pantanir einfaldari og þægilegri fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Með nýju lausninni er markmiðið að bæta þjónustu, auka öryggi og gera viðskiptavinum kleift að sinna pöntunum á skilvirkari hátt.
Í tengslum við opnunina hefur verið tekin upp rafræn auðkenning til að styrkja öryggi kerfisins. Af þeirri ástæðu þurfa allir viðskiptavinir að sækja um aðgang að vefversluninni á ný, jafnvel þótt þeir hafi áður haft aðgang að eldri lausn.
Dregið um PING golfsett
Til að fagna opnuninni verður dregið úr hópi þeirra sem skrá sig í nýju vefverslunina fyrir 20. apríl. Einn heppinn þátttakandi hlýtur glæsilegt PING golfsett sem nýtist vel þegar sumarið gengur í garð.
Viðskiptavinir geta sótt um aðgang að nýju vefversluninni á vef ÓJ&K – ÍSAM. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða hafa spurningar geta haft samband með tölvupósti á [email protected] eða í síma 535-4000.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau




