Vertu memm

Markaðurinn

Marengs jólatré með hindberjasósu, vanillurjóma og ferskum berjum

Birting:

þann

Marengs jólatré með hindberjasósu, vanillurjóma og ferskum berjum

Það eru til ýmsar skemmtilegar útgáfur af svona marengs jólatrjám eða pavlovutrjám eins og þau eru oft nefnd. Þau eru einfaldari en þau líta út fyrir og eru sérlega falleg á jólaborðinu. Fersk hindberjasósan og berin passa sérlega með vanillurjómanum og sætunni í marengsnum. Möndlukeimurinn af marengsnum gefur smá marsípanbragð sem gerir ótrúlega mikið og bragðið verður aðeins sparilegra fyrir vikið.

Innihald:

Marengsbotnar

5-6 eggjahvítur við stofuhita (170ml)

1 ¼ bolli sykur

2 ½ tsk maizena mjöl

1 ¼ tsk borðedik

1/2 tsk möndludropar

Hindberjasósa

200g frosin hindber

70g frosin jarðarber

2 msk sykur

Vanillurjómi

400ml rjómi frá MS Gott í matinn

3 tsk vanillusykur

 

Fersk jarðarber

Fersk hindber

 

Flórsykur til skrauts

Fíngert greni til skrauts

Aðferð:

Byrjið á því að aðskilja eggin. Best er að gera eitt egg í einu og setja eina hvítu í einu í hrærivélaskál. Það er sérlega leiðinlegt að fá örðu af eggjarauðu út í allar hvíturnar ef það skyldi gerast.

Setjið sykurinn í matvinnsluvél og leyfið henni að vinna í smástund, það er best ef sykurinn er orðinn vel fínn.

Byrjið á því að þeyta eggjahvíturnar, þeytið í ca. 2 mín og byrjið þá að setja sykurinn út í í smá skömmtum, 1 msk í einu. Þegar allur sykurinn er kominn út í, þeytið þá áfram þar til allur sykurinn er uppleystur. Setjið þá maizena mjöl og edik saman við og þeytið í smástund þar til allt er samlagað.

Teiknið 7 hringi á bökunarplötu. Þvermálið þarf að vera: 15cm, 12cm, 10cm, 8.5cm, 6.5cm, 5cm og 4 cm. Það er í fínu lagi þó málin séu ekki nákvæmlega svona, 1cm til eða frá skiptir engu.

Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið hringina fallega á plötuna. Ef það verður afgangur af marengsnum sprautið honum þá bara í það mynstur eða toppa sem ykkur hugnast og geymið til að nota í marengsskál eða skreyta bakkann með. Bakið við 120°C blástur í 1 klst, látið kólna í ofninum, helst yfir nótt.

Hindberjasósan:

Setjið ber í pott ásamt sykri og sjóðið í 5-8 mín. Stappið berin að mestu með gaffli á meðan þau sjóða. Maukið þau með töfrasprota og kælið alveg.

Samsetning:

Þegar setja á tréð saman, er best að gera það bara rétt áður en það á að bera það fram. Hafið öll hráefni við höndina þegar þið byrjið.

Þeytið rjómann með vanillusykrinum og skolið og skerið jarðarber í frekar stóra bita. Takið fram fallegan kökudisk eða bakka og setjið smá rjómaslettu á hann miðjan og setjið stærsta marengsinn á hann. Smyrjið lagi af rjóma á botninn og setjið söxuð jarðarber og nokkur hindber á rjómann, toppið með hindberjasósu og setjið að síðustu örlítinn rjóma þar yfir. Takið fram grillpinna og stingið honum í miðjan botninn með oddhvassa endann upp. Rennið þá næstu stærð af marengs fyrir neðan á prjóninn, passið að prjóninn fari í miðjan botninn, endurtakið þetta þar til toppurinn er settur efst. Skreytið hliðarnar og bakkann með ferskum berjum, setjið einhverja sæta tjörnu á toppinn og dustið yfir með flórsykri.

Það gæti vafist fyrir einhverjum hvernig skera á tréð. Langbest er bara að skera í það að ofanverðu og nota skeið á móti. Þetta fer mjög fljótlega í stóra gúmmelaðiklessu á bakkanum og er þá borið fram eins og Eton mess marengs skál.

Gleðileg jól!

Marengs jólatré með hindberjasósu, vanillurjóma og ferskum berjum

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið