Frétt
Kjötiðnaðarnám undir hnífnum | Engir nemendur hafa skráð sig í námið á þessari önn
Báðum fagkennurum í kjötiðn við Hótel- og matvælaskólann hefur verið sagt upp. Formaður Meistarafélags kjötiðnaðarmanna segir þetta alvarlegt mál fyrir greinina.
Að sögn Halldórs J. Ragnarssonar formanns Meistarafélags kjötiðnaðarmanna er skýringin sem hann hefur fengið frá skólameistara MK þar sem Hótel- og matvælaskólinn er starfræktur sú að engir nemendur hafi skráð sig í námið á þessari önn og því telji skólinn sér ekki fært að halda úti tveimur starfsmönnum. Halldór segir annan starfsmannanna vera með 6 mánaða uppsagnarfrest og því ljóst að hann verði á launum fram á sumar, að því er fram kemur á ruv.is.
Hann segir að Matvælasamband hafi komið af fjöllum við þessi tíðindi. Þetta sé alvarleg staða fyrir greinina. Kennsla fari einnig fram hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri, en aðastaða þar sé ekki nærri eins góð og í Kópavogi. Halldór segir að rætt verði við ráðuneytið og eins ætli Matvís að efna til fundar. Hann segist skilja skólameistara þannig að málið verði endurskoðað ef einhverjir skrá sig til náms.
Halldór segir að endurskoða þurfi námskrána og hvort ástæða sé til að breyta henni. Hún sé byggð fyrir unglinga 16 ára og eldri, en það sé ekki hópurinn sem velti fyrir sér námi í kjötiðn, heldur frekar fólk sem vinnur í faginu og vill mennta sig í því. Síðustu 3 ár hafi að meðaltali verið 1,3 nemendur í námi í kjötiðn.
Þá segir Halldór fulla ástæðu til að hafa meira eftirlit með því sem kallað er beint frá býli. Kjötiðn sé lögvernduð grein. Í lagi sé hins vegar í bæjarfélögum þar sem færri en hundað búa að vinna kjöt án aðkomu fagmanns, en eitthvað af því kjöti fari í framhaldinu á stærri markað eins og til Reykjavíkur. Lítið eftirlit sé með því.
Greint frá á ruv.is
Mynd: Smári
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt24 klukkustundir síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or7 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina






