Bocuse d´Or
„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
Undirbúningur fyrir eina virtustu matreiðslukeppni heims er í fullum gangi. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir verður næsti fulltrúi Íslands í forkeppni Bocuse d’Or sem fram fer í Marseille dagana 15. til 16. mars 2026. Markmiðið er skýrt. Að tryggja sæti í lokakeppninni sem haldin verður í Lyon í janúar 2027.
Bocuse d’Or er haldin annað hvert ár og er gjarnan líkt við Ólympíuleika matreiðslunnar. Undankeppnir fara fram árið á undan víðs vegar um heiminn, en sjálf úrslitakeppnin stendur yfir í tvo daga í Lyon. Keppnin hefur verið haldin frá árinu 1987 og hafa íslenskir matreiðslumenn sett sterkan svip á hana frá því Sturla Birgisson keppti fyrstur Íslendinga árið 1999 og hafnaði í fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í hópi tíu efstu þjóða. Bestum árangri náðu Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 þegar þeir unnu til bronsverðlauna.
Við hlið Snædísar stendur öflugt teymi. Aðstoðarmaður hennar er Marlís Jóna Karlsdóttir og má jafnframt lesa viðtal við hana hér. Með þeim starfar öflugur hópur aðstoðarmanna. Þar á meðal er Sædís Hui sem gegnir lykilhlutverki í teyminu.
Sædís er hálf íslensk og hálf kínversk. Hún fæddist í Kína en flutti sjö ára gömul til Íslands.
„Ég hef alltaf dáðst að matarmenningunni frá báðum mínum menningarheimum og þar held ég að ástríðan mín fyrir matreiðslu hafi kviknað,“
segir hún í samtali við veitingageirinn.is.
Hún hóf nám árið 2023 á Matarkjallaranum og lauk sveinsprófi í janúar á þessu ári. Á námsleiðinni naut hún leiðsagnar kennara og fagmanna sem höfðu afgerandi áhrif á hana.
„Hermann Þór Marinósson, matreiðslukennari í Hótel og matvælaskólanum, og Valtýr Svanur Ragnarsson, yfirkokkur á Matarkjallaranum, höfðu einstaklega mikla trú á mér í gegnum ferlið. Ég er þar sem ég er stödd í dag þökk sé þeim.“
Sædís segist heilluð af hráefnum úr nærumhverfinu og áherslu á gæði og fjölbreytni.
„Ég hef mikinn áhuga á matreiðslu úr hráefnum úr nærumhverfi. Fjölbreytni og sú þrjóska að gefast aldrei upp eru mínir helstu styrkleikar í eldhúsinu.“
Hún kom inn í Bocuse d’Or teymið eftir að henni bauðst hlutverk í gegnum vin sem starfar með Snædísi.
„Það sem heillaði mig mest var að fá meiri innsýn í matreiðsluheiminn og auðvitað reynslan sem fylgir svona verkefni.“
Hlutverk hennar í teyminu er skýrt og krefjandi. Hún sér um skipulag, hönnun og þróun ýmissa þátta í undirbúningnum. Æfingarnar eru umfangsmiklar og krefjandi.
„Það er líklega mest krefjandi að gera sama hlutinn aftur og aftur þar til hann verður fullkominn. Þetta snýst um miklar æfingar og nákvæmni.“
Markmið hennar eru skýr.
„Ég vil læra allt sem verið er að gera og nýta mér það til fulls. Til framtíðar stefni ég á að ferðast um heiminn, kynna mér ólíkar matreiðsluaðferðir og vonandi vinna erlendis eftir þetta tímabil.“
Fram undan eru mánuðir af markvissum undirbúningi þar sem ekkert er látið eftir tilviljun. Ísland hefur áður sýnt að það á heima í fremstu röð á sviði Bocuse d’Or. Nú stefna Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og teymi hennar að því að skrifa næsta kafla í þeirri sögu í Marseille vorið 2026, með Lyon 2027 sem lokamarkmið.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn2 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn1 dagur síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Keppni14 klukkustundir síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




