Keppni
Keppninni Grænmetiskokkur ársins 2025 lokið – Úrslit kynnt í Bjórgarðinum á morgun
Grænmetiskokkur ársins 2025 fór fram í dag í IKEA, þar sem keppnin var haldin í sérútbúnum keppniseldhúsum við útgang verslunarinnar.
Alls tóku fjórir keppendur þátt að þessu sinni:
Monica Daniela Panait – Hótel Geysir
Dominika Kulińska – Mötuneyti sveitarfélagsins Stykkishólms
Andrés Björgvinsson – LUX veitingar
Kamil Ostrowski – Brak
Keppendur höfðu fimm klukkustundir til undirbúnings og hófu matreiðsluna með fimm mínútna millibili. Þeir elduðu þriggja rétta matseðil fyrir 12 manns, þar sem lögð var áhersla á tiltekin hráefni í hverjum rétti:
Forréttur: Tómatur, fennel og blaðsellerí
Aðalréttur: Arborio hrísgrjón, hvítur spergill og grasker
Eftirréttur: Basilíka, jarðarber og rjómaostur
Úrslitin í keppninni verða kynnt á morgun, laugardag, í Bjórgarðinum eftir klukkan 18:00, samhliða úrslitum í keppninni Kokkur ársins.
Sigurvegarinn í keppninni Grænmetiskokkur ársins 2025 fær tækifæri til að keppa fyrir Íslands hönd á norrænu meistaramótinu Nordic Green Chef, sem haldið verður í Herning í Danmörku í mars á næsta ári.
Keppnin Grænmetiskokkur ársins er nú haldin í annað sinn á vegum Klúbbs matreiðslumeistara. Fyrsta keppnin fór fram árið 2024, en þá sigraði Bjarki Snær Þorsteinsson og keppti síðar fyrir Íslands hönd á Global Vegan Chef Europe í Rimini á Ítalíu. Þar hafnaði hann í þriðja sæti í keppnishópnum Europe North.
Meðfylgjandi myndir tók Aron Elvar Bjarkason, nemandi á grunndeild Hótel- og matvælaskólans.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Frétt6 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn3 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg











