Markaðurinn
Gómsætar bollur með hvítsúkkulaðimús frá Lindu Ben
Uppáhaldsdagur margra sælkera, bolludagurinn, er framundan og þá þarf nú aldeilis að tína til skemmtilegar uppskriftir að bollum til að gleðja svanga munna.
Linda Ben töfraði fram þessa dásamlegu uppskrift að vatnsdeigsbollum með einfaldri hvítsúkkulaðimús, sem eflaust mun gleðja ófáa bragðlauka á, og jafnvel fyrir, bolludaginn.
Bollur með einfaldri hvítsúkkulaðimús
Vatnsdeigsbollur
125 g smjör
1 msk sykur
275 ml vatn
170 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
3-4 egg
Aðferð:
1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.
Einföld hvítsúkkulaðimús
300 g Síríus hvítt súkkulaði
200 g rjómi
150 g Síríus súkkulaðiperlur
Aðferð:
1. Hitið rjómann í potti, hellið hvíta súkkulaðinu í skál og hellið heita rjómanum yfir, hrærið þar til súkkulaðið hefur allt bráðnað og samlagast rjómanum. Setjið blönduna í kæli.
2. Þegar blandan hefur kólnað setjið hana í hrærivél og þeytið þar til blandan verður loftmikil.
3. Setjið í sprautupoka með stórum opnum sttjörnustút og sprautið inn í bollurnar sem hafa verið skornar í tvennt.
4. Skreytið með súkkulaðiperlum og lokið bollunum.
-
Keppni3 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt2 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu






