Frétt
Nói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
Nói Síríus hefur lækkað verð á öllum súkkulaðivörum sínum um 10 prósent. Verðlækkunin nær jafnt til innlendra og erlendra vörumerkja fyrirtækisins.
Undanfarin ár hafa verið fordæmalaus í verðlagningu á hrávöru til súkkulaðiframleiðslu. Þurrkar og erfið ræktunarskilyrði á helstu kakósvæðum heimsins héldu heimsmarkaðsverði á kakói og kakósmjöri í sögulegum hæðum, sem kallaði á verðhækkanir hjá framleiðendum víða um heim. Nú hefur dregið úr þessum þrýstingi samhliða auknu framboði, og það ásamt hagræðingu og bættum framleiðsluferlum hjá Nóa Síríus skapar svigrúm til að lækka verð.
„Þegar hrávöruverð hækkaði lögðum við mikið á okkur til að mæta auknum kostnaði með hagræðingu, breyttum verkferlum og stöðugum samskiptum við birgja og viðskiptavini. Það varð til þess að verð hjá okkur hækkaði minna en sem nam breytingum á heimsmarkaðsverði. Nú þegar verð á helsta hráefninu í framleiðslunni er stöðugra viljum við stíga fyrstu skref í að skila ávinningi áfram til viðskiptavina,“
segir Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Sirius í tilkynningu.
Sjóðurinn AF3, sem er í rekstri Alfa Framtaks, keypti fyrr á árinu allt hlutafé í Nóa Síríusi af Orkla Snacks. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaupin og hefur Nói Síríus því færst aftur í innlenda eigu. Um er að ræða eitt rótgrónasta framleiðslufyrirtæki landsins sem á sér rúmlega aldarlanga sögu.
Mynd: noi.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




