Vertu memm

Markaðurinn

Hátíðlegur páskaeftirréttur

Birting:

þann

Hátíðlegur páskaeftirréttur

Gull eggið er hátíðlegur páskaeftirréttur á Hótel Keflavík & KEF Restaurant.

Nóa Síríus páskaegg fyllt með espresso- og karmellurjóma, í lakkrís og karamellu marengs hreiðri.

Uppskriftin er hér að neðan og nú getur þú skapað þennan glæsilega eftirrétt heima:

Innihald

Lakkrís og karamellu marengs

200 g sykur

100 g púðursykur

150 g eggjahvítur

5 ml ylliblóma edik

80 g Nóa Eitt Sett kurl

70 g Nóa Karamellu kurl

Espresso og Karamellusúkkulaði rjómi 

500 g rjómi

150 g Nóa karamellusúkkulaði

40 ml espresso kaffi

60 g Nóa Eitt Sett kurl

60 g Nóa Smá Kropp

10 stk Nóa Páskaegg nr 1

Aðferð:

Marengs 

Hitið ofninn í 130 °c

Notið hreina hrærivélarskál og setjið, sykurinn, eggjahvíturnar og edikið saman og þeytið þar til blandan verður stíf.

Þegar blandan er klár þá blandið þið Eitt Sett kurli og karamellu kurli saman við með sleif.

Setjið smjörpappír á ofnplötu, marengsinn í sprautupoka og sprautið marengsnum í 10 litla botna, passið að hafa nógu langt á milli svo þeir festist ekki saman, gott að ýta aðeins á miðjuna með matskeið til að búa til litla skál .

Bakið í 30 – 35 mínútur og takið svo út úr ofninum, marengsinn á að vera aðeins blautur í miðjunni.

Espresso karamellusúkkulaði rjómi  

Hitið 100 ml af rjóma að suðu ásamt espresso. Setjið karamellusúkkulaðið í skál og hellið heitu rjómablöndunni yfir. Hrærið þangað til súkkulaðið er alveg bráðið og blandan alveg komin saman. Kælið svo en passið að blandan stífni ekki.

Þeytið 400 ml af rjóma þar til hann er létt þeyttur og þá má hella Espresso karamellu rjómann saman við og þeyta saman þar til hann verður stífur.

Skiptið rjómanum upp í 70/30 hlutföll, 70 % hlutfallið er sett í sprautupoka og sprautað á marengsinn en það er bætt við Eitt Sett kurli og Smá Kroppi út í 30 % hlutfallið.

Hitið vel lítinn og beittann hníf með vatni, þurrkið bleytuna í burtu og skerið toppinn af páskaegginu (10 stk)

Notið 30 % hlutfallið með sælgætinu til þess að fylla páskaeggin.

Setjið eggið ofan á marengsinn með rjómanum og berið fram á fallegum disk og skreytið með berjum og sælgæti.

Hótel Keflavík - Kef restaurant

Óli Már Erlingsson

Uppskrift frá Óla Má Erlingssyni yfirkokk á Hótel Keflavík & KEF Restaurant.

Myndir: noi.is / Ólafur Sveinn Guðmundsson

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið