Markaðurinn
Gamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
Klassísk og dásamleg hnallþóra eins og þær gerast bestar. Þessi er bökuð við hátíðleg tilefni á mínu heimili, helst alltaf á jólum og páskum. Draumterta eða Dísudraumur eins og sumir kalla hana er að mínu mati drottning hinnar íslensku hátíðartertu. Það er snjallt að baka svampbotninn og marengsinn deginum fyrir samsetningu og tertan er svo langbest daginn eftir samsetningu.
Svampbotn:
2 egg
80 gr sykur
30 gr hveiti
30 gr kartöflumjöl
1 tsk vanilludropar)
Marengs:
3 eggjahvítur
150 gr púðursykur
Súkkulaðikrem:
3 dl rjómi frá Gott í matinn
100 gr suðusúkkulaði
3 eggjarauður
4 msk. flórsykur
Á milli:
4 dl rjómi frá Gott í matinn
Svampbotn aðferð:
- Hitið ofn í 190°C á blástur. Þeytið saman egg, sykur og vanilludropa þar til ljóst og loftkennt. Bætið hveiti og kartöflumjöli út í og blandið rólega saman við með sleikju.
- Smyrjið kökuform og setjið bökunarpappír í botninn. Hellið deiginu í formið og jafnið út. Bakið í 15 mínútur eða þar til bökuð í gegn. Látið kökuna kólna aðeins og losið úr forminu og látið kólna alveg á grind.
Marengs aðferð:
- Hitið ofninn í 130 gráður með blæstri. Setjið eggjahvítur og sykur í skál og þeytið vel saman þar til stíft eða í um 10 mínútur.
- Setjið bökunarpappír í botninn á kökuformi jafnstóru og þið bökuðuð svampbotninn í. Dreifið marengsinum í formið og bakið í miðjum ofni í klst. 3.
- Slökkvið á ofninum og opnið litla rifu og látið kólna alveg í ofninum.
Súkkulaðikrem aðferð:
- Þeytið rjómann og setjið í skál.
- Bræðið súkkulaðið við vægan hita.
- Þeytið eggjarauður og flórsykur mjög vel saman eða þar til ljóst og létt. Bætið súkkulaði út í og þeytið vel. Blandið síðanog síðan rjómanum varlega saman við.
Samsetning:
- Þeytið 4 dl af rjóma.
- Setjið svampbotninn á tertudisk og smyrjið helmingnum af rjómanum ofan á . Smyrjið síðan helmingnum af súkkulaðikreminu yfir rjómann.
- Setjið marengsinn ofan á og endurtakið síðan, rjóma og endið á súkkulaðikremi.
- Geymið í ísskáp yfir nótt og berið svo fram.
Uppskrift eftir Helenu Gunnars.
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni2 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn1 dagur síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Frétt3 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn




