Markaðurinn
Framhaldsnámskeið fyrir þjóna sem vilja skerpa á sölu og skipulagi
Námskeiðinu er ætlað að skerpa söluvitund og skipulagshæfileika þjóna. Á námskeiðinu er farið yfir hversvegna við seljum eitthvað en ekki bara eitthvað ásamt því að skerpa á vitund þjóna um hversu miklu máli undirbúningur skiptir.
Farið er yfir skipulag er varðar hópa og hvernig best er að bera sig að varðandi nálgun og þjónustu við hina mismunandi hópa á veitingahúsum.
Fyrir hverja:
- Þjóna og þjónustufólk með reynslu sem vill skerpa á söluvitund og skipulagshæfileikum.
Markmið:
- Að styrkja hæfni í sölu, undirbúningi og skipulagi þjónustu við mismunandi hópa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Söluvitund og markmið með sölu
- Mikilvægi undirbúnings
- Skipulag og nálgun þjónustu við hópa
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilja tilgang og gildi virkrar sölu
- Undirbúa sig faglega fyrir þjónustu
- Bjóða upp á skipulagða og markvissa þjónustu við hópa
Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu má finna hér.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð




