Smári Valtýr Sæbjörnsson
Eldaði þorskhaus og lúðusúpu fyrir Rick Stein

Einn þekktasti sjónvarpskokkur Breta, Rick Stein, er staddur hér á landi við upptökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð. Afraksturinn verður sýndur á BBC food í byrjun sumars.
Mynd t.v.: Rick Stein og Gísli Matthías Auðunsson yfirmatreiðslumaður á Matur og Drykkur. Mynd t.h.: Rick Stein og Ragnar Eiríksson yfirmatreiðslumaður á Dill restaurant
Einn þekktasti sjónvarpskokkur Breta, Rick Stein, er staddur hér á landi við upptökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð. Stein hefur um árabil verið þekktasta andlit BBC á þessu sviði. Á meðal veitingastaða sem Stein hefur heimsótt eru Matur og Drykkur þar sem hann fékk þjóðlega rétti.
„Við elduðum fyrir hann okkar útgáfu af lúðusúpu og líka þorskhaus,“
segir Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumaður í samtali við ruv.is en hann er einn eiganda staðarins Matar og Drykkjar. Brasaður þorskhaus Gísla og félaga hefur vakið þó nokkra athygli.
Gísli segir að Stein muni heimsækja nokkra veitingastaði hér á landi auk þess að skoða annað tengt mat og drykk.
„Hann er að taka upp nýja seríu og fer til nokkurra stórborga.“
Gísli segir aðspurður að um mikinn heiður sé að ræða fyrir þá hjá Mat og drykk.
„Hann er auðvitað algjör goðsögn í þessum bransa og búinn að vera fremsti kokkur BBC í áratugi. Þetta er góð kynning fyrir okkur og auðvitað Ísland.“
Gísli, sem einnig á og rekur Slippinn í Vestmannaeyjum, segir að Stein stefni einnig að því að veiða fisk af bryggju á meðan hann er hér og jafnvel að ná sér í eina lopapeysu.
Við Rick Stein fáránlega hressir eftir góðar tökur! #maturogdrykkur
Posted by Matur og Drykkur on 1. febrúar 2016
Svo virðist sem Stein hafi látið drauminn um íslensku lopapeysuna rætast en hann birti mynd af sér í einni slíkri á Twitter. Myndina má sjá hér að neðan.
Arctic times for @Rick_Stein , great view from our room @IcelandairHotel #lovereykjavik pic.twitter.com/jXnwD9TiOo
— Sarah Stein (@sasstein) February 1, 2016
Mr. Rick Stein stopped by the other night… Pictured here with an embarrassingly star struck 37 year old.
Posted by DILL Restaurant Reykjavik on 3. febrúar 2016
Greint frá á ruv.is
-
Markaðurinn1 dagur síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn1 dagur síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt4 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt3 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt6 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax


