Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
Vinastræti er fjölskyldurekinn veitingastaður sem einblínir á staðbundið hráefni og er staðsettur við Laugarvatn. Staðurinn opnaði í sumar á þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní með pomp og prakt en þá hafði staðið yfir gagngerar endurbætur á húsnæðinu.
Eigendur eru Sunneva Thoroddsen Bjarnadóttir og Sæþór Dagur Ívarsson framreiðslumaður.
Vinastræti tekur 30 manns í sæti og opnunartími er 11:30 til 21:00.
„Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér, það er hlýtt og huggulegt. Við viljum hafa sem bestu gæði af hráefnum og ferskan mat.“
Sagði Sunneva og Sæþór í samtali við veitingageirinn.is aðspurð um sérstöðu veitingastaðarins og hvað er á boðstólnum, en þau hafa mikla ástríðu á mat og þjónustu.
Í hádeginu er boðið upp á gott úrval af samlokum með heimabökuðu súrdeigsbrauði, pizzum, súpum, salati og sætindi. Á kvöldin breytist staðurinn meira í bistro stemningu þar sem boðið er upp á smárétti með hráefni úr héraðinu og einnig með pizzur, salöt og súpu.
„Reksturinn gengur mjög vel“
Sunneva og Sæþór hafa starfað í veitingabransanum til fjölda ára en þeir veitingastaður og hótel má nefna þá starfaði Sunneva hjá Sumac, Vínstùkunni og Hótel Keflavík og Sæþór hjá Hörpunni, Hótel Húsafell og Hótel Keflavík. Sunneva er með Sommelier gráðu í WSET skólanum.
Sæþór er framreiðslumaður að mennt, en hann lærði fræðin sín á Hörpunni og útskrifaðist árið 2016.
„Reksturinn gengur mjög vel. Í sumar var þetta mjög blandað af ferðamönnum og Íslendingum en núna sjáum við meira af ferðamönnum en svo eru heimamenn duglegir að koma og styðja okkur líka.“
Einstök lamba pizza á matseðli
Signature réttur staðarins er lamba pizzan sem er borin fram með pizzasósu, mozzarella, hægelduðu lambi úr héraði með súrsuðum eldpipar, lauk og klettasalati, en þeim hefur verið sagt að þessi samsetning hefur ekki sést hér á Íslandi.
Vinastræti býður einnig upp á tvö herbergi til leigu á Airbnb og Booking sem eru mjög hugguleg tveggja manna herbergi með sér baðherbergi, lítinn ísskáp og ketil og útsýni yfir fjallið.
Heimasíða: vinastraeti.is
Myndir: Aðsendar
Smelltu hér til að skrá þig á ókeypis fréttabréf með fréttum, tilboðum, uppskriftum og meira.
-
Keppni3 dagar síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni4 dagar síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni3 dagar síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanKokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
-
Keppni1 dagur síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Keppni14 klukkustundir síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni3 dagar síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta

























