Markaðurinn
Það toppar fátt alvöru eldbakaðar DeliVita pizzur
Það þekkja eflaust margir pizzaofnanna frá DeliVita, en fyrirtækið hefur fengið ótal viðurkenningar í Bretlandi þaðan sem ofnarnir koma.
DeliVita framleiðir bæði pizzaofna fyrir fagmenn en einnig fyrir áhugamenn um eldbakaðar pizzur utandyra.
Nýverið kom stofnandi DeliVita hann Joe Formisand til Íslands í heimsókn í Bako Ísberg, sem er umboðsaðili DeliVita á Íslandi, en þar fór hann yfir allt það nýjasta sem framundan er hjá þessu áhugaverða og flotta fyrirtæki.
DeliVita býður upp á alvöru leirofna sem hægt er fá annaðhvort með gaskyndingu eða viðarkyndingu en fyrirtækið kom nýlega með ofna á markað sem þykja þeir allra léttustu á markaðnum sem kallast Diavolo en þeir þykja ofur kraftmiklir gasofnar.
Diavolo ofninn er fisléttur og því auðvelt að ferðast með hann, enda ekki að ástæðulausu að taska fylgir með í kaupunum ásamt spaða, steini, hitamæli og þrýstijafnara. Hann er aðeins 15 mínútur að ná 500°c sem er kjörhiti til að hefja eldamennskuna.
Í dag eru Diavolo ofnarnir á sértilboði hjá Bako Ísberg og er nú aðeins á 59.900 kr.
Hægt er að fá allar upplýsingar um ofna fyrir fagmenn sem og stærri leirofninn hjá sölumönnum Bako Ísberg og Verslunartækni, en fyrirtækin eru nýlega flutt saman að Draghálsi 18, 110 Reykjavík.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Áhugavert7 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Keppni6 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt6 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Keppni5 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
-
Keppni5 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
-
Markaðurinn5 dagar síðanIðan Fræðslusetur 20 ára – fullt af tækifærum fyrir fagfólk







