Sverrir Halldórsson
Fyrrum Sous chef hjá Dinner by Heston verður Executive chef á 28-50
Graham Jessop fyrrverandi Sous chef hjá Dinner by Heston Blumenthal, hefur tekið við stöðu executive chef hjá 28- 50 og mun stjórna eldhúsinu á þeim þremur stöðum sem eru undir merkjum 28- 50.
Hann mun þróa nýja rétti á matseðla staðarins og geta gestir staðarins gætt sér á réttum sem tilheyra klassísku frönsku bistro, svo sem 28 daga hangið US rib-eye, þorsk og brasseraðan blaðlauk.
Graham er ættaður frá Ástralíu og hefur unnið á Michelin stöðum eins og Foliage, The Square, The Greenhouse og eins og áður segir Dinner by Heston áður en hann slóst i hópinn á 28-50.
En eins og menn vita þá eru þeir Xavier Rousset vínþjónn og Agnar Sverrisson matreiðslumaður stofnendur og eigendur á 28- 50 stöðunum.
Einnig skal þess getið að sömu aðilar eiga og reka 1 Michelinstjörnu-staðinn Texture í London.
Vonandi verður þessi ráðning til þess að auka hróður þessa staða í framtíðinni.
Myndir: 2850.co.uk
![]()
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel23 klukkustundir síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn1 dagur síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann



