Keppni
Norræna nemakeppnin í máli og myndum – Vídeó

F.v.: Hinrik Örn Halldórsson, Marteinn Rastrick, Gabríel Kristinn Bjarnason, Finnur Gauti Vilhelmsson, Högni Kristjánsson, sendiherra Íslands í Noregi og Benedikt E. Birnuson
Keppendur frá Íslandi voru matreiðslunemarnir Hinrik Örn Halldórsson og Marteinn Rastrick hjá LUX veitingum. Í framreiðslu kepptu þeir Finnur Gauti Vilhelmsson nemi á Vox Brasserie og Benedikt E. Birnuson nemi hjá Matarkjallaranum. Þjálfari nemanna í matreiðslu var Gabríel Kristinn Bjarnason og Axel Árni Herbertsson þjálfaði framreiðslunemanna.
Keppnin var haldin í Osló dagana 21. – 22. apríl 2023 í Hótel og matvælaskólanum þar í landi.
Þeir Hinrik Örn og Marteinn unnu til gullverðlauna í matreiðslu og framreiðslunemarnir voru í fjórða sæti. Keppnin var mjög jöfn í framreiðslu og munaði fáum stigum á efstu sætunum.
Sjá einnig: Gull til Íslands
Þema keppninnar var „Byggjum á hefðum“ og var t.a.m eitt af verkefnum matreiðslunemanna að matreiða „färikäl“ sem er hefðbundin Norskur réttur og nemar í framreiðslu útbjuggu og framreiddu „beef-tartare“ fyrir gesti.
Fyrri keppnisdaginn matreiddu matreiðslunemarnir þrjá rétti og framreiðslunemarir kepptu í uppdekkningu á tveggja manna borði, pöruðu saman drykki við rétti á matseðli, í vínsmakki og blöndun kokteila. Seinni daginn unnu keppendur með „Mystery-basket“ sem var samsett úr fjölbreyttu hráefni. Verkefnið var matreiða og framreiða fimm rétta matseðil. Framreiðslunemarnir settu upp sex manna veisluborð með borðskreytingum, pöruðu drykki við réttina á matseðili, kepptu í faglegri þjónustu og framreiðslu á réttunum.
Mynd: idan.is
-
Markaðurinn6 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
-
Frétt7 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerskt íslenskt kínakál komið á markað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu


