Markaðurinn
Bransadagar – „…endum svo vikuna á brjáluðu bransapartíi“
Bransadagar Iðunnar fara fram í fyrsta sinn í ár með fjölbreyttri fræðslu helgaðri sjálfbærni í iðnaði. Á bransadögum koma saman ólíkar iðngreinar og setja sjálfbærni í brennidepil; prent- og miðlunargreinar, matvæla- og veitingagreinar, byggingar- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar og bílgreinar.
Dagana 9. og 10. nóvember verður boðið upp á stafræna fyrirlestra á vefnum frá innlendum og erlendum sérfræðingum í sjálfbærni og umhverfismálum í iðnaði. Við endum svo vikuna á brjáluðu bransapartíi í húsnæði Iðunnar að Vatnagörðum 20, föstudaginn 11. nóvember nk.
Bransapartí
Húsið opnar kl. 15:00 með skemmtilegri dagskrá.
- Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála fjallar um grænan iðnað
- Sonja Rut Aðalsteinsdóttir, service development manager og Sigurður Örn Alfonsson, sustainability specialist kynna sjálfbærnivegferð Marels
- Kynning á verkefninu orkuskipti.is
- Uppistand
- Frikki Dór stígur á svið
- Júlladiskó sér um að þeyta skífum
- Veitingar frá Lady Brewery og Kokkunum
Aðgangur í partíið er að sjálfsögðu ókeypis en það þarf að skrá sig.
Mynd: úr safni
-
Keppni4 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn4 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn9 klukkustundir síðanPierre Koffmann heimsótti Finnsson í Kringlunni – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM




