Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Ketilkaffi opnar í Listasafninu á Akureyri
Á dögunum var skrifað undir samning milli Listasafnsins á Akureyri og Þórunnar Eddu Magnúsdóttur og Eyþórs Gylfasonar um rekstur kaffihúss í Listasafninu. Stefnt er á opnun um miðjan júní og mun kaffihúsið bera heitið Ketilkaffi.
„Við erum mjög spennt fyrir að flytja aftur heim til Akureyrar og opna Ketilkaffi í Listasafninu, en okkur hefur lengi dreymt um að opna lítið kaffihús. Við Eyþór höfum góðan grunn úr kaffi- og veitingageiranum, bæði á Íslandi og erlendis, og viljum bjóða Akureyringum og öðrum gestum bæjarins upp á hágæða veitingar.“
segir Þórunn Edda Magnúsdóttir í tilkynningu frá Listasafninu á Akureyri.
Sérvalið kaffi frá Kaffibrugghúsinu og náttúruvín frá Mikka ref
„Á boðsstólnum verður m.a. sérvalið kaffi frá Kaffibrugghúsinu, frábær náttúruvín frá Mikka ref, límonaði sem blandað er á staðnum og spennandi kokteilar, svo eitthvað sé nefnt. Áhersla verður á góðan mat úr gæðahráefnum og má þar nefna súrdeigsbrauðið okkar og salöt með sérvöldum ostum og kjötmeti, fjölbreyttan tapasseðil og ferskar acai- og drekaávaxtaskálar.
Að sjálfsögðu verður svo hægt að fá eitthvað sætt með kaffinu og erum við sérstaklega spennt fyrir að bjóða upp á súrdeigskleinuhringina okkar, sem gerðir eru ferskir frá grunni á hverjum morgni.“
„Alltaf gott veður á Akureyri“
„Eins og allir vita er alltaf gott veður á Akureyri og sólríka stéttin fyrir framan safnið og svalirnar á fjórðu hæðinni eru tilvalin svæði til að tylla sér með svalandi drykk og góðan mat og fylgjast með mannlífinu. Við hvetjum áhugasama til að fylgja okkur á samfélagsmiðlum, en þar erum við þessa dagana að sýna frá tilraunaeldhúsinu okkar og öðrum undirbúningi.
Þegar nær dregur opnun í júní munum við svo kynna opnunartilboð sem gilda fyrir okkar fylgjendur og því er um að gera að fylgjast með,“
segir Þórunn Edda Magnúsdóttir annar eigenda Ketilkaffis.
Hægt er að fylgjast með Ketilkaffi á samfélagsmiðlum og á heimasíðu:
www.ketilkaffi.is
www.facebook.com/ketilkaffi
www.instagram.com/ketilkaffi
Mynd: facebook / Listasafnið á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞórir: „Allir eiga að fá tækifæri“
-
Markaðurinn5 dagar síðanHótel Laugarbakki og Hótel Blönduós óska eftir eldhússtarfsfólki í sumar
-
Keppni4 dagar síðanSkráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin hættir með grænu stjörnuna
-
Frétt2 dagar síðanMatvælastofnun varar við neyslu á frosnum nautamaga
-
Markaðurinn2 dagar síðanSH-41 handsápa fyrir matvælaiðnað nú Svansvottuð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel11 klukkustundir síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London



