Frétt
Ómerkt egg í fullelduðum kjúklingabringum
Matvælastofnun varar neytendur með eggjaofnæmi við neyslu á tilteknum Sous vide kjúklingabringum frá Stjörnufugli. Varan inniheldur egg án þess að það komi fram á merkingum. Fyrirtækið innkallar allar lotur með best fyrir dagsetningum fyrir 15.11.20, í samráði við Matvælastofnun.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
Vöruheiti: Stjörnufugl Sous vide kjúklingabringur, Hvítlaukspipar Parmesan
Strikamerki: 2328801005023
Best fyrir dagsetningar: Allar fyrir 15.11.20
Framleiðandi: Stjörnufugl, Saltvík, 162 Reykjavík
Dreifing: Verslanir Krónunnar og verslanir Samkaupa (Nettó og Kjörbúðin)
Viðskiptavinir Krónunnar og Samkaupa sem keypt hafa vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum er bent á að neyta hennar ekki og skila í verslunina þar sem hún var keypt.
Mynd: aðsend / Matvælastofnun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanVel heppnuð Matur & Vín sýning hjá Innnes – Myndir og myndband
-
Keppni6 dagar síðanElvar keppti fyrir Íslands hönd í Singapore
-
Frétt5 dagar síðanSkordýraleifar fundust í hrísgrjónum
-
Markaðurinn6 dagar síðanLærðu af einum fremsta matarljósmyndara Norðurlanda
-
Keppni1 dagur síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Frétt5 dagar síðanÓlöglegt varnarefni fannst í Pinkids eplum
-
Markaðurinn2 dagar síðanFastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa




