Frétt
Evrópubúar horfa fyrst og fremst til við kaup á matvælum er uppruni
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur gert könnun á viðhorfi Evrópubúa til matvælaöryggis.
Niðurstöðurnar sýna að meirihluti Evrópubúa er meðvitaður um matvælaöryggi og tveir þriðju neytenda hafa breytt sínum neysluvenjum vegna upplýsinga sem þeir hafa fengið um matvælaöryggi. Tveir af fimm lýsa persónulegum áhuga á matvælaöryggi og einn af fimm segir það vera þeirra helsta forsenda við kaup á matvælum.
Það sem flestir Evrópubúar horfa fyrst og fremst til við kaup á matvælum er uppruni (53%), verð (51%), matvælaöryggi (50%) og bragð (49%). Minni áhersla er lögð á næringargildi (44%). Siðferði og trú (þ.e.a.s. dýravelferð, umhverfisáhrif og trúarbrögð) hafa minnstu áhrif við val á matvælum (19%).
Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að þegar kemur að matvælaöryggi er ekkert eitt málefni sem veldur neytendum mestum áhyggjum meðal aðildarríkja ESB. Í yfir 20 löndum voru þrjú helstu áhyggjuefni neytenda misnotkun á sýklalyfjum, hormónum og sterum í búfé (44%), leifar af skordýraeitri í matvælum (39%) og aukefni í matvælum (36%).
Þegar kemur að upplýsingum um hættur í matvælum bera evrópskir neytendur mest traust til vísindamanna eða 82% (sem er 9% hækkun frá árinu 2010), neytendasamtaka (79%) og bænda (69%). Traust til yfirvalda í hverju landi er 60% og til evrópskra stofnana 58% sem er í takt við niðurstöðurnar frá 2010.
Rætt var við 27,655 viðmælendur í 28 löndum Evrópusambandsins (ESB) í apríl 2019. Sambærileg viðhorfskönnun var síðast gerð árið 2010.
Mynd: úr safni
-
Keppni3 dagar síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Markaðurinn3 dagar síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Markaðurinn2 dagar síðanViltu vinna í hjarta Húsavíkur? Fosshótel leitar að kokki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan„Ómetanlegt að vita hvaðan maturinn kemur“ sagði Dóra. Um 100 manns á stefnumóti á Flúðum – Myndir
-
Frétt21 klukkustund síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Markaðurinn4 dagar síðanYfirmatreiðslumaður óskast á Fosshótel Núpar
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý vara á markað: Svart pepperoni
-
Keppni11 klukkustundir síðanGull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir






