Frétt
Nýja Norræna Michelin handbókin komin út – Íslenski listinn óbreyttur
Í gær var nýja Norræna Michelin handbókin kynnt við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Kaupmannahafnar. Nokkar breytingar urðu á listanum og nýr veitingastaður bættist við listann, en það er veitingastaðurinn Frantzén í Stokkhólmi og er jafnramt fyrsti veitingastaðurinn í Svíþjóð sem hlýtur þrjár Michelin stjörnur.
Frantzén fékk þrjár Michelin stjörnur, en eigandi staðarins er Björn Frantzén matreiðslumeistari. Björn er einn af bestu kokkum heims en stíll hans er blanda af frönsku og norrænni matargerð með japönsku ívafi.
Kári Þorsteinsson yfirkokkur á DILL var við athöfn Michelin-nefndarinnar og tók við staðfestingu um að DILL heldur Michelin-stjörnu sinni.
Að auki eru fjögur önnur íslensk veitingahús með Michelin viðurkenningu. Matur og drykkur er með Bib Gourmand viðurkenninguna, en þau verðlaun eru fyrir veitingastaði sem bjóða uppá hágæða mat á hóflegu verði.
Jafnframt er öllum veitingastöðum veitt einkunn fyrir andrúmsloft og þægindi staðarins en það eru skeið og gaffall í kross, frá einum til fimm krossa. Einn kross táknar „þægilegan veitingastað“ á meðan fimm krossar tákna „lúxusveitingastað.“ Gallery á Hótel Holti er með þrjá krossa (Very good standard) en Ragnar Eiríksson matreiðslumaður vinnur nú hörðum höndum við að opna HOLT sem er nýr veitingastaður sem opnar á Hótel HOLT 28. febrúar næstkomandi. Vox og Grillið eru með tvo krossa (Good standard).
Hér að neðan eru þau veitingahús sem fengu nýja stjörnu í Norrænu handbók Michelin 2018:
Danmörk
Tvær stjörnur
Kadeau (Kaupmannahöfn)
Ein stjarna
Jordnær (Gentofte)
Me | Mu (Vejle)
Finnland
Ein stjarna
Grön (Helsinki)
Noregur
Ein stjarna
Galt (Osló)
Svíþjóð
Þrjár stjörnur
Frantzén (Stokkhólm)
Tvær stjörnur
Daniel Berlin (Skåne-Tranås)
Ein stjarna
Agrikultur (Stokkhólm)
Aloë (Älvsjö)
Sav (Malmö)
-
Markaðurinn3 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni4 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni3 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý hnífataska frá Beittum hnífum
-
Markaðurinn3 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn2 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Vín, drykkir og keppni16 klukkustundir síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna






