Freisting
Nokkrar botnfisktegundir í Norður-Atlantshafi í útrýmingarhættu
Nokkrar botnfisktegundir í Norður-Atlantshafi eru við það að deyja út, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem kanadískir vísindamenn hafa gert. Könnuðu þeir ástand fimm stofna á þessum slóðum, þ.á m. lýsings og áls, og komust að því, að stofnstærð sumra tegunda hefur hrunið um allt að 98% á einni kynslóð.
Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC, en rannsóknarniðurstöðurnar birtast í nýjasta hefti tímaritsins Nature.
Bæði vísindamenn og náttúruverndarsinnar hafa hvatt til alþjóðlegs banns við botnfiskveiðum og segja eyðileggingarmátt botnvarpa mikinn. Þær eru dregnar eftir sjávarbotninum og rústa þar kóralrifum og öðrum vistkerfum. Síðast var reynt að fá Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja bann í nóvember, en það mistókst.
Niðurstöður nýju rannsóknarinnar, sem Jennifer Devine, við Memorial-háskóla í St.John’s á Nýfundnalandi, stjórnaði, þykja renna enn frekari stoðum undir þá fullyrðingu að botnvörpuveiðar hafi mikil áhrif á vistkerfi í sjónum. Þær fisktegundir sem rannsakaðar voru eiga það sameiginlegt að vaxa og fjölga sér hægt, en þær ná ekki kynþroska fyrr en á táningsárum“. Þetta segja vísindamennirnir að geri tegundirnar mjög viðkvæmar fyrir áhrifum botnfiskveiða.
Greint frá mbl.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn1 dagur síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu


