Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt hótel á Laugaveginum | CenterHotels Miðgarður
Miðgarður er nýtt hótel og er staðsett á Laugavegi 120, en hótelið opnaði í byrjun júní. Á hótelinu eru 43 björt og glæsileg herbergi sem hafa stóra glugga og bjóða því upp á einstaklega gott útsýni. Á hótelinu er einnig morgunverðasalur og skemmtilegur bar.
Byggingin hýsti áður banka og er því vítt til veggja og hátt til lofts á móttöku- og barsvæðinu sem skapar þennan fallega en um leið vinalega karakter hótelsins sem arkitektarnir Gláma Kím sóttust eftir við hönnun hótelsins. Stórar plöntur eru einnig áberandi á hótelinu og undirstrika þær enn frekar notalegt andrúmsloft hótelsins.
Hótelið er hefur fengið einstaklega góðar móttökur allt frá opnun þess og allt bendir til þess að nóg verður um að vera á hótelinu næstu mánuðina en gestirnir hafa verið mjög ánægðir með dvölina.
Ekki er búið að opna veitingastað á Miðgarði en það er í pípunum og komum við hér á veitingageirinn.is til með að gera góð skil á þeim veitingastað þegar þar að kemur.
Hótelstjóri Miðgarðs er Davíð Kjartansson. Davíð lauk BSc-prófi í hótelstjórnun og ferðamálafræði við César Ritz University í Sviss og MSc-gráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði við Háskóla Íslands. Hann starfaði áður sem hótelstjóri ION Luxury Adventure Hotel á Nesjavöllum. Þá hefur hann einnig gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá Ríki Vatnajökuls ehf og aðstoðarhótelstjóra hjá Icelandair Hotel Klaustri og Hótel Geirlandi.
Hótelið Miðgarður er sjötta hótelið í CenterHotels keðjunni sem er fjölskyldurekin hótelkeðja til 20 ára og rekur 6 hótel og tvo veitingastaði í miðborg Reykjavíkur.
Myndir: af facebook síðu Miðgarðs.
-
Keppni6 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Markaðurinn3 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn5 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn4 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð







