Markaðurinn
Montes heiðraður í Þýskalandi og Chile
Aurelio Montes hefur áratugum saman verið einn fremsti víngerðarmaður Suður-Ameríku en í fyrra voru 25 ár liðin frá því að hann stofnaði ásamt nokkrum félögum vínhúsið Montes. Á dögunum hlaut Aurelio Montes viðurkenningu frá þýska sælkeratímaritinu Feinschmecker fyrir framlag sitt til víngerðar ( Lifetime Achievement Award) og sömuleiðis frá Samtökum vín- og matarblaðamanna í Chile.
Bæði Feinschmecker og Chilean Food and Wine Writers Guild nefna sérstaklega frumkvöðlastarfsemi Montes á sviði þurrar ræktunar (dry farming) þar sem vínviðurinn er skilyrtur til að komast af með mun minna vatn en venjulega þarf við vínrækt. Með notkunar þessarar aðferðar er hægt að draga verulega úr vatnsnotkun en einnig bæta gæði vínanna, ræturnar þurfa að grafa sig neðar og vínin verða kröftugri og míneralískari. Vínin í Montes Alpha-línunni frá og með 2012-árganginum sýna afrakstur þessarar aðferðar.
Það má svo auðvitað rifja upp að Aurelio var staddur hér á landi haustið 2013 og hélt þá Master-Class smökkun í samstarfi við Vínótekið. Hér má sjá viðtal sem tekið var við hann í tengslum við þá smökkun.
Frekari upplýsingar um vínin frá Montes inná globus.is og um nýju Argentínsku vínin hans Kaiken þar sem sonur hans Aurelio Montes Jr stjórnar víngerðinni.
Myndir: aðsendar
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Keppni4 dagar síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Mijita er fyrsti 100% glútenfríi veitingastaðurinn í Wolt appinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðan
Gulli bakari heiðraður sem kaupmaður ársins 2024
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðan
Mikil aukning á fölsuðu áfengi – IBA biðlar til allra barþjóna og veitingamenn að vera vel á verði