Markaðurinn
Mikil stemning á Hótelsýningu Bako Ísberg sem hófst í dag – Myndir
Hótelsýning Bako Ísberg hófst í dag og lýkur henni á morgun föstudag. Mikil stemning var strax við opnun sýningarinnar en hún stendur frá 13.00 til 18.00 báða dagana.
Bjarni Ákason framkvæmdastjóri segir að sýningin hafi verið sett í gærkvöldi með hátíðarkvöldverði og í morgun voru námskeið á Rational gufusteikingarofna, en gestur sýningarinnar er að þessu sinni Fredrik Lindström frá Rational.
Á sýningunni er Innnes að kynna mjög spennandi uppsetningu og valkosti á morgunverðarhlaðborði og auk þess er Vínnes með vínkynningu á freyðivíninu Lamberti Prosecco sem smellpassar einnig fyrir hinn vinsæla drykk Mimosa. Globus er einnig á staðnum og er að kynna argentínska rauðvínið Trivento, Pfaffl hvítvínið og Amarula og svo er Himbrimi einnig með kynningu á staðnum með ginið vinsæla sem var valið það besta í heimi í sínum flokki.
Bako Ísberg býður sérstakan hótel afslátt þessa daga en það er 20% afsláttur af hótelvörum, postulíni, glösum, pottum & pönnum, Arcos og fleiri spennandi vörum á sýningunni.
Starfsfólk Bako Ísberg tekur vel á móti þér á Hótelsýningunni þeirra sem haldin er í húsakynnum fyrirtækisins að Höfðabakka 9.
Nánar á www.bakoisberg.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði


















