Vertu memm

Markaðurinn

Námskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?

Birting:

þann

Jól - Jólahlaðborð - Jólin

Er þjónustuteymið þitt tilbúið í jólatörnina? Þegar mikið er að gera skipta undirbúningur, skipulag og samstillt þjónustuteymi sköpum.

Þann 27. október heldur Iðan Fræðslusetur námskeiðið „Gerum afgreiðslu að þjónustu“, þar sem farið er yfir grunnþætti fag­legrar þjónustu sem nýtast vel í annasömu jólahaldi.

Hver er munurinn á því að afgreiða og þjónusta? Hvernig getur starfsfólk mælt markvisst með því sem hentar gestinum og hvers vegna skiptir máli að allt teymið vinni eftir sama áttavita? Þessar spurningar eru meðal þess sem tekið verður fyrir, ásamt söluvitund, framkomu og flæði þjónustunnar.

Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi undirbúnings og skipulags, sameiginleg vinnubrögð og þjónustu við ólíka hópa á veitingastöðum. Þetta eru atriði sem gott er að skerpa á áður en jólahlaðborðin og jólahóparnir taka yfir.

Námskeiðið hentar nýju og óreyndu þjónustufólki jafnt sem starfsfólki sem vill styrkja grunninn. Fyrir veitingamenn og stjórnendur í þjónustu er þetta tækifæri til að undirbúa teymið fyrir jólatörnina með fagmennsku og upplifun gestanna að leiðarljósi.

Nánari upplýsingar og skráning á idan.is.

Mynd: úr safni

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið