Frétt
Beint frá býli dagurinn haldinn um land allt
Beint frá býli dagurinn verður haldinn núna á sunnudaginn, 23. ágúst, fjórða árið í röð, en viðburðurinn hefur fest sig í sessi sem fjölskylduvæn matarhátíð í íslenskri sveit.
Markmiðið er að vekja athygli á hugmyndafræði beint frá býli og smáframleiðslu matvæla, efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og hvetja fleiri til að hasla sér völl á því sviði. Tilgangurinn er kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum og smáframleiðslu matvæla í héraði og byggja upp tengsl milli þeirra.
Á hveru ári taka sjö lögbýli að sér að vera gestgjafar, eitt í hverjum landshluta. Á staðinn safnast saman aðrir smáframleiðendur úr landshlutanum til að kynna og selja sínar vörur. Ýmis afþreying er í boði til viðbótar við það sem býlin sjálf hafa uppá að bjóða og viðurðirnir því afar fjölskylduvænir.
Nánari upplýsingar um hvern viðburð má finna á vef Beint frá býli.
Afar góð mæting hefur verið hingað til, almennt mikil ánægja og sala framleiðenda góð. Með því hafa neytendur stutt við íslenska matarmenningu, bændur og samfélög landsins.
Að deginum standa Samtök smáframleiðenda matvæla (SSFM) og Beint frá býli (BFB). BFB varð aðildarfélag SSFM árið 2022 og eru þau með sameiginlegan framkvæmdastjóra sem er jafnframt verkefnastjóri dagsins. Í félögunum eru á þriðja hundrað félagsmenn, rúmur helmingur á lögbýlum og um fimmtungur á höfuðborgarsvæðinu og svipaður fjöldi í þéttbýli utan þess.
Beint frá býli dagurinn var fyrst haldinn árið 2023 í tilefni af 15 ára afmæli BFB. Viðtökurnar voru framar vonum og var því ákveðið að gera hann að árlegum viðburði. Dæmi eru um að aðsóknin hafi verið slíka að malarvegir hafi verið merktir „hight traffic“ á Google Maps.
Gestgjafarnir hafa öll árin lagt sig fram við að gera daginn sem fjölbreyttastan og áhugaverðastan. Auk markaðanna, þar sem bæði hefur verið seld matvæli og handverk, hefur fók geta notið samveru í sveitinni og kynnst starfinu að baki.
Viðburðirnir hafa verið styrktir ýmist af landshlutasamtökunum, sveitarfélögum, uppbyggingarsjóðum og hefðu viðburðirnir ekki orðið að veruleika án þeirra.
Myndir frá matarhátíðinni árið 2024. Myndir: Facebook / Beint frá býli
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð






