Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Reynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
Resident Room, nýr og fágaður kokteilbar, opnar dyr sínar að Hverfisgötu 26, þar sem Mat bar var áður til húsa, næstkomandi miðvikudag.
Að staðnum stendur hópur reynslubolta úr veitinga- og skemmtanageiranum sem ætlar sér að hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni.
Resident Room er sérstaklega hannaður með markhópinn 30 ára og eldri í huga. Megináhersla staðarins er lögð á framúrskarandi kokteila, vandlega valið vínúrval og glæsilegan „happy hour“. Einnig verður boðið upp á létta rétti eða ,,aperitivo” sem tónar fullkomlega við drykkjaseðilinn.
Opnunartími verður frá klukkan 16:00 til 01:00, sem gerir staðinn tilvalinn jafnt fyrir eftirvinnudrykkinn sem og notalegt kvöld í góðra vina hópi.
Slippbarsteymið mætt aftur til leiks
Það sem mun án efa vekja mikla athygli er teymið sem stýrir barnum. Þar fara fremstir í flokki þeir Ásgeir Már Björnsson, betur þekktur sem Ási, og Rás 2 útvarpsmaðurinn Danni Baróns. Ási er af mörgum talinn einn helsti brautryðjandi kokteilmenningarinnar eins og við þekkjum hana á Íslandi í dag.
Eftir að hafa verið búsettur erlendis undanfarin misseri er hann nú snúinn aftur heim og hefur tekið höndum saman við Danna, en þeir félagar störfuðu einmitt lengi saman á Slippbarnum þar sem íslenska kokteilbyltingin hófst fyrir alvöru. Markmið þeirra á Resident Room er skýrt: Að halda áfram að ýta mörkum kokteilsenunnar enn lengra.
Auk þeirra Danna og Ása kemur að staðnum fólk með áratugareynslu úr íslenska skemmtanalífinu, meðal annars frá goðsagnakenndum stöðum á borð við Rex og Loftið. Sú reynsla mun skila sér í framúrskarandi þjónustu og andrúmslofti þar sem fagmennskan er í fyrirrúmi.
Myndir: aðsendar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel21 klukkustund síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn4 dagar síðanFagfélögin loka skrifstofu sinni í tvær vikur vegna sumarleyfa








