Keppni
Fagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
Árleg osta- og brauðtertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis fór fram í miðbæ Selfoss í gær, sunnudaginn 7. júní, þar sem fjölmargir keppendur mættu til leiks með girnilegar ostakökur og brauðtertur.
Keppnin hefur fest sig í sessi sem vinsæll viðburður á Suðurlandi en hún hófst fyrir tólf árum sem ostakökukeppni Kaffi Krúsar.
Fyrir þremur árum bættist Konungskaffi við sem samstarfsaðili og þá var brauðtertuflokki einnig komið á laggirnar.
Sigurvegari í flokki ostakaka að þessu sinni var Mina Stojanov með Baklava ostaköku sem vakti mikla athygli dómnefndar. Í umsögn nefndarinnar var kökunni lýst sem frumlegri, fallegri, bragðgóðri og skemmtilega öðruvísi. Uppskriftin á rætur sínar að rekja til Tyrklands og þótti vel takast til við að blanda saman hefðbundnum baklava-brögðum og ostaköku.
Í flokki brauðterta stóð Hilmar Þór Harðarson, matreiðslumeistari, uppi sem sigurvegari með Sítrónu-rækjutertu. Dómnefndin var einstaklega hrifin af verkinu og gaf tertunni fullt hús stiga, eða 10 af 10 mögulegum.
Verðlaun fyrir fallegustu kökuna hlaut Evgeniiya Vaganova fyrir ostakökuna Allsber sem skreytt var með ferskum berjum. Evgeniya, sem einnig er þekkt undir nafninu Zhenja, er bakaranemi og heldur úti Instagram-síðunni @bakkelsi þar sem hún deilir myndum af kökum sínum og öðru bakkelsi.
Formaður dómnefndar var Guðrún Hafsteinsdóttir. Með henni í nefndinni sátu Anna Margrét Magnúsdóttir, sem hefur unnið keppnina þrívegis, Daníel Ólafsson, Haukur Már Hauksson, Ida Sofia Grundberg, Valdimar Bragason og Þórhildur Guðbjörg Hjaltadóttir.
Vinningshafar hlutu vegleg verðlaun frá Hótel Geysi, Hótel Kríu í Vík og Hótel Örk, auk ostakarfa frá MS. Allir keppendur fengu jafnframt gjafabréf að verðmæti 20 þúsund krónur frá Kaffi Krús og Konungskaffi.
Aðstandendur keppninnar þökkuðu þátttakendum, styrktaraðilum og dómnefnd fyrir framlag sitt, auk allra þeirra sem mættu á svæðið og fylgdust með. Samkvæmt þeim var dagurinn afar vel heppnaður og stemningin einstök frá upphafi til enda.
Myndir: Ísak Eldjárn
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni7 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt4 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt3 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt2 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann







