Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind í haust – Myndir
Fasteignafélagið Heimar og Smáralind hafa skrifað undir samning við þrettán veitingaaðila um opnun veitingastaða á nýju og stórglæsilegu veitingasvæði í austurenda Smáralindar sem opnar í haust.
Kynningarmyndband
Með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingarflóra Smáralindar með fjölbreyttara úrvali veitinga sem höfðar til hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá fólki í leit að fljótgerðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun. Veitingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir þær tugþúsundir sem búa og starfa í kringum Smáralind og verður kærkomin viðbót í veitingaflóru svæðisins, hvort sem er á daginn eða á kvöldin.
Nýir og þekktir veitingastaðir undir sama þaki
Af þeim þrettán veitingastöðum sem opna á nýja veitingasvæðinu eru tíu nýir í Smáralind og nokkrir sem hingað til hafa aðeins verið í miðbæ Reykjavíkur. Þá kemur veitingastaðurinn Hjá Höllu, sem margir þekkja frá Grindavik og flugstöðinni, auk tveggja alveg nýrra veitingastaða.
Veitingastaðirnir sem verða hluti af nýja veitingasvæðinu í Smáralind eru:
Djúsí Sushi
Funky Bhangra
La Trattoria
Hjá Höllu
Fuego
Neo pizza
Yuzu borgarar
Gelato ís
Sbarro
Serrano
Subway
Top wings
5 Spice by XO
„Við höfum fengið til liðs við okkur farsælustu veitingaaðila landsins til að sjá um matarupplifunina á þessu nýja svæði í Smáralind.
Svæðið sjálft er hannað af Javier Bootello og hans fólki hjá Basalt arkitektum og hugsunin er að þarna geti fólk komið saman, notið góðs matar og átt huggulega stund í fallegu umhverfi hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin,”
segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum.
- Haukur Már Hauksson, einn af eigendum Yuzu, og Elvar Már Torfason, annar eigandi Top wings og 5 spice by XO.
- Jósef Halldór Þorgeirsson, einn af eigendum La Trattoria, Yesmine Olsson, eigandi Funky Bhangra, og Þórunn Birna Úlfarsdóttir markaðsfulltrúi hjá Heimum.
Fagnað með samstarfsaðilum
Gleði og eftirvænting sveif yfir vötnum þegar starfsfólk Heima og Smáralindar og rekstraraðilar nýju veitingastaðanna komu saman til að innsigla samstarfið. Búist er við að framkvæmdum ljúki á næstu vikum og að hægt verði að opna nýju veitingastaðina um mánaðarmótin október/nóvember.
Opnun veitingasvæðisins markar tímamót í sögu Smáralindar og setur nýjan mælikvarða á fjölbreytni og gæði veitingaframboðs í verslunarmiðstöðvum hér á landi.
- Aldona, gæðastjóri Serrano, og Barbara Rut Bergþórsdóttir frá útleigusviði Heima
- Halla María Svansdóttir og Sigurpáll Jóhannsson, eigendur Hjá Höllu ásamt Baldri Má Helgasyni, Barböru Rut Bergþórsdóttur og Rúnari Hermannssyni Bridde
- Bergdís Örlygsdóttir og Daniel Kavanagh frá Djúsí Sushi ásamt Barböru Rut Bergþórsdóttur og Rúnari Hermannssyni Bridde frá útleigusviði Heima
- Yesmine Olsson og Arngrímur Fannar Haraldsson, eigendur Funky Bhangra ásamt Barböru Rut Bergþórsdóttur og Rúnari Hermannssyni Bridde frá útleigusviði Heima
Myndir: Anton Bjarni / Smáralind
-
Markaðurinn5 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Markaðurinn3 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt1 dagur síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt KEA skyr sækir innblástur í einn þekktasta eftirrétt heims










