Vín, drykkir og keppni
Trump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
Donald Trump Bandaríkjaforseti og fyrirtæki tengd vörumerki hans eiga nú í vörumerkjadeilu við víngerð í Kaliforníu sem hefur sérhæft sig í vínum með pólitískum skírskotunum.
Það er víngerðin Republican Red Winery í Monterey í Kaliforníu sem stendur í deilunni, en eigandi hennar, Paul Johnson, hefur um nokkurt skeið selt vín sem vísa beint til Trump og slagorða hans. Þar á meðal eru Chardonnay-vínin „Drill Baby Drill“ og „Drain the Swamp“, auk rauðvínsins „Epic Fury“, sem vísar til hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn Íran.
Á fréttavefnum Fox News kemur fram að nú hafa þó þrjú fyrirtæki tengd Trump, DTTM Operations, Trump Wine Marks LLC og CIC Operations, farið fram á að bandaríska einkaleyfa- og vörumerkjastofan felli niður vörumerki vínsins „45-47 Republican Red Special Edition“.
Ástæðan er svokölluð „45-47“ vörumerking, sem vísar til þess að Trump gegndi embætti sem 45. og 47. forseti Bandaríkjanna. Sú merking hefur síðustu misseri verið notuð á fjölbreyttum MAGA-varningi og vilja lögmenn fyrirtækjanna verja notkun hennar.
Í kærunni kemur fram að nafn vínsins geti skapað rugling og gefið til kynna að Trump eða fyrirtæki hans styðji vöruna opinberlega.
Á heimasíðu Republican Red Winery er vínið kynnt sem „sterk vísun í seiglu, arfleifð og endurkomu leiðtoga sem hætti aldrei að berjast fyrir Ameríku“. Þar segir einnig að vínið heiðri Donald Trump sem 45. og 47. forseta Bandaríkjanna.
Johnson, sem er annarrar kynslóðar vínræktandi, segir jafnframt að vínin séu framleidd með áherslu á gæði og föðurlandsást. Þá hafi hann meiri trú á „tengingu í gegnum vín, en átök vegna kvartana“.
Hann hefur einnig sagt að pólitískar umræður eigi heima við matarborðið og eigi ekki að vera tabú.
Víngerðin selur vín sín eingöngu á netinu. Samkvæmt Johnson er það ekki af eigin vilja, heldur vegna þess að verslanir vilji ekki taka vörurnar í sölu vegna nafns fyrirtækisins.
Í viðtali við íhaldssama fjölmiðilinn Newsmax sagði hann að smásalar óttuðust viðbrögð neytenda ef þeir seldu vín frá fyrirtæki með orðið „Republican“ í nafninu.
Johnson hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um sjálfa vörumerkjadeiluna.
Trump hefur áður komið að markaðssetningu drykkja. Í desember síðastliðnum voru pantanir opnaðar á ný á Trump Vodka, bandarísku vodkamerki sem var upphaflega sett á markað fyrir um 14 árum undir slagorðinu „The Great American Spirit“. Framleiðslu þess var hætt árið 2011 eftir slaka sölu og lagadeilu við fyrrverandi samstarfsaðila.
Myndir: republicanred.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Frétt4 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Markaðurinn4 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Markaðurinn3 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði





