Markaðurinn
Pistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni
Mjúk og ilmandi pistasíu- og sítrónukaka þar sem djúpt hnetubragð og ferskur sítrónukeimur mætast í fullkomnu jafnvægi. Punkturinn yfir i-ið er silkimjúkt mascarpone rjómaostakremið sem gerir kökuna bæði létta, ferska og einstaklega freistandi. Tilvalin á veisluboðið eða með sunnudagskaffinu.
Pistasíu- og sítrónukaka með mascarpone rjómaostakremi
Innihald
kaka
170 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
100 g pistasíukjarnar ferskir og ósaltaðir eða saltaðir (fer eftir smekk)
Börkur af tveimur sítrónum
120 g smjör við stofuhita
200 g sykur
½ tsk sjávarsalt
3 egg
60 g sýrður rjómi
80 ml mjólk
1 tsk vanilludropar
Mascarpone krem
200 g marscarpone rjómaostur frá Gott í matinn
100 g flórsykur
1 msk rjómi
1 msk rifinn börkur af sítrónu
1 msk ferskur sítrónusafi
Hakkaðir pistasíukjarnar ofan á kökuna
Aðferð
- Setjið smjörpappír í hringlaga eldfast mót ca. 20 cm að stærð og hitið ofninn í 180 gráðu hita með blæstri.
- Setjið smjör og sykur saman í skál og hrærið þar til blandan er orðin ljós og létt.
- Bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni hér.
- Hakkið pistasíukjarna í matvinnsluvél þar til þeir eru orðnir fínsaxaðir. Passið þó að hakka þá ekki of lengi svo þeir breytist ekki í pistasíusmjör.
- Setjið hakkaða pistasíukjarnana í skál ásamt hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og rifnum berki af sótrónu og hrærið vel saman.
- Blandið þurrefnum saman við ásamt sýrðum rjóma, mjólk og vanilludropum.
- Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og setjið í eldfast mót og bakið í 20 -25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
- Á meðan kakan er að bakast undirbúi þið kremið.
- Takið kökuna út og leyfið henni að kólna við stofuhita áður en þið setjið kremið á svo kremið bráðni ekki.
Krem
- Setjið öll hráefni saman í skál og hrærið þar til kremið verður slétt og fínt.
- Smyrjið kreminu vel á kökuna og grófsaxið pistasíukjarna og setjið ofan á kremið.
- Kakan er best við stofuhita en þarf að geymast í kæli þar til hún er borin fram.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt4 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn2 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanSkyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast




