Vertu memm

Markaðurinn

Klassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu

Birting:

þann

Klassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu

Lasanja er klassískur réttur sem allir elska, hér er ég að notast við nýja útgáfu af kotasælu sem er bragðbætt með hvítlauk og svörtum pipar. Nýja kotasælan setur algjörlega punktinn yfir i-ið í þessum rétti.

En með því að nota kotasælu í þennan rétt er hann mun próteinríkari en með hvítu sósunni sem sumir nota á milli laga. Ég er einnig að nota kotasæluna með chili og sriracha sem ídýfu með grænmeti sem meðlæti. Einstaklega sniðugt að mauka kotasæluna og bera fram sem sósu með grænmeti. Einnig er hægt að nota hana inn í vefjur og í aðra rétti.

Innihald:

  • 500 g nautahakk
  • 2 dósir kotasæla með hvítlauk og pipar
  • 4 – 500 g pastasósa
  • 150 g rifinn ostur
  • 9 stk lasanja plötur (fer eftir stærð á fati)
  • 1 laukur 150 g
  • 1 matskeið olía
  • 1 stk kjötkrafts tengingur
  • 250 ml vatn
  • salt, pipar, hvítlaukskrydd, chilli krydd, oregano, timían um 1 tsk af hverju kryddi.
  • fersk basilíka (má sleppa)
  • Meðlæti: 1 dós kotasæla með chili sriracha og paprikur.

Byrjið á því að skera lauk smátt og steikja upp úr olíunni, bætið hakkinu á pönnuna og steikið það og kryddið. Þegar hakkið er gegnumsteikt er pastasósunni bætt út á pönnuna. Leysið kjötteninginn upp í 250 ml af heitu vatni og bætið út á pönnuna. Bætið fersku basilíkunni út á pönnuna. Maukið kotasæluna með töfrasprota eða í matvinnsluvél.

Smá hluti af kjötsósunni er settur í botninn á eldföstu móti, partur af kotasælunni þar yfir og svo lasanjaplötur þar ofan á, endurtakið þar til kjötsósan klárast. Setjið að lokum rifna ostinn efst. Rétturinn er hitaður við 190 gráður í 30 – 35 mínútur.

Það má einnig blanda kotasælunni út í kjötsósuna ef einhverjum finnst það þægilegra.

Það er sniðugt að máta pastaplöturnar í eldfasta mótið fyrst. Misjafnt er hvort fólk vill nota 2 eða 3 lög af plötum.

Næring í 100 g

Kolvetni: 10,3 g

Prótein: 12,5 g

Fita: 7,2 g

Trefjar: 0,5 g

Höfundur: Helga Magga

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttum og bragðgóðum uppskriftum til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið