Keppni
Hver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
Spennan er í hámarki í dag þegar úrslitakeppni Kokk ársins 2026 fer fram, en þar mætast fimm fremstu matreiðslumenn landsins í harðri baráttu um einn virtasta titil greinarinnar. Keppnin, sem nú er haldin í 30. sinn, á sér rætur aftur til ársins 1994 og hefur um árabil verið mikilvægur vettvangur fyrir íslenska matreiðslumenn til að sýna hæfileika sína og sköpunarkraft.
Forkeppnin sem fram fór fyrr í vikunni var afar jöfn og spennandi og tryggðu fimm keppendur sér sæti í úrslitum. Það eru þeir Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi, Guðmundur Halldór Bender frá Mister Iceland, Hugi Rafn Stefánsson frá Black Sand Hotel, Wiktor Pálsson frá Nomy veisluþjónustu og Hinrik Örn Halldórsson frá Lóla restaurant.
Sjá einnig: Fimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
Úrslitin fara fram í IKEA í dag þar sem keppendur elda þrjá rétti hver, forrétt, aðalrétt og eftirrétt, samkvæmt fyrirfram ákveðnu tímaplani. Keppnin hefst síðdegis og munu réttirnir koma fram á fimm mínútna fresti, sem krefst mikillar nákvæmni og skipulags hjá keppendum.
Áhorfendur eru hvattir til að mæta á staðinn og upplifa stemninguna, en verslun IKEA opnar klukkan 11. Einnig verður hægt að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu hér að neðan.
Undanfarna daga hafa jafnframt farið fram aðrar stórar keppnir innan greinarinnar, Sjávarréttakeppni og Grænmetiskokkur ársins, og verða úrslit þeirra ásamt úrslitum Kokk ársins kynnt í kvöld við hátíðlega athöfn á NASA í Hótel Parliament. Þar opnar húsið klukkan 18 og má búast við glæsilegri kvöldstund þar sem fremstu fagmenn landsins koma saman.
Allt bendir til þess að úrslitin í ár verði afar spennandi, enda um að ræða öflugan hóp matreiðslumanna sem allir hafa sannað sig á sínu sviði. Titillinn Kokkur ársins er eftirsóttur og sigurvegari dagsins bætir nafni sínu í hóp þeirra sem hafa markað spor í íslenskri matargerð.
Bein útsending
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni6 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt3 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt2 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt1 dagur síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann



