Markaðurinn
Yfirmatreiðslumaður óskast á Fosshótel Núpar
Fosshótel Núpar óskar eftir metnaðarfullum yfirmatreiðslumanni til að leiða hæfileikaríkt teymi í eldhúsi okkar á þriggja stjörnu landsbyggðarhóteli. Þetta er spennandi tækifæri til að taka að sér lykilhlutverk í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi.
Hæfniskröfur
Próf í matreiðslu er skilyrði
Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
Góð samskiptafærni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
Öryggisvitund og þekking á HACCP
Ábyrgð
Fagleg stjórnun, leiðsögn og þróun starfsmanna í eldhúsi
Fjármál og rekstrargreining
Verkefna- og ferlastýring
Umsjón með gæðum, þjónustu, öryggi og hreinlæti
Í boði er húsnæði til leigu.
Óskir um nánari upplýsingar sendist á Laura Nadzieja Graca-Dorociuk, hótelstjóra, [email protected] eða Sævar Karl Kristinsson, yfirmann veitingasviðs, [email protected]
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2026.
Fosshótel Núpar er við hringveginn, í miðju eystra Eldhrauni, en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Vatnajökul og Lómagnúp. Mikil náttúrufegurð er í nágrenni hótelsins og örstutt í einstakar náttúruperlur.
Lærðu meira um Fosshótel Núpa.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 05.04.2026
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni4 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn4 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn6 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag






