Markaðurinn
Langar þig að læra að tína villta sveppi?
Langar þig að læra að þekkja íslenska ætisveppi og nýta þá á öruggan hátt í matargerð? Á þessu fræðandi og verklega námskeiði fá þátttakendur innsýn í heim íslenskra sveppa, læra að greina helstu ætisveppategundir og kynnast öruggri söfnun, meðhöndlun og matreiðslu þeirra.
Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem vilja auka þekkingu sína og njóta þess að draga björg í bú úr íslenskri náttúru. Námskeiðið er í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á íslenskum ætisveppum, sveppatínslu og öruggri nýtingu sveppa til matargerðar, hvort sem um er að ræða byrjendur eða þá sem vilja dýpka þekkingu sína.
Markmið:
Að veita þátttakendum fræðilega og hagnýta þekkingu á íslenskum sveppum, kenna örugga greiningu algengra ætisveppa og efla færni í söfnun, meðhöndlun, geymslu og matreiðslu sveppa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
– Sveppi sem lífverur og hlutverk þeirra í náttúrunni.
– Helstu ætisveppategundir sem finna má á Íslandi.
– Greiningu á um 20 tegundum öruggra ætisveppa.
– Útbreiðslu sveppa, búsvæði þeirra og helstu einkenni.
– Algengar eitraðar sveppategundir og hvernig greina má þær frá ætisveppum.
– Verklega sveppagreiningu í náttúrunni undir leiðsögn kennara.
– Hvenær sveppir eru á hentugu þroskastigi til nýtingar.
– Rétta meðferð, hreinsun og verkun sveppa.
– Aðferðir við geymslu og varðveislu sveppa.
– Matreiðslu og nýtingu mismunandi sveppategunda í eldhúsi.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
– Þekkja helstu einkenni um 20 algengra og öruggra ætisveppa á Íslandi.
– Geta greint á milli algengra ætisveppa og helstu hættulegra tvífara þeirra.
– Hafa skilning á búsvæðum og útbreiðslu helstu ætisveppa.
– Geta safnað sveppum með öruggum og ábyrgum hætti.
– Kunna að meðhöndla, hreinsa og ganga frá sveppum til geymslu eða matreiðslu.
– Hafa öðlast aukið öryggi í að nýta villta sveppi til manneldis.
Aðrar upplýsingar:
Kennari er Helena Marta Stefánsdóttir, skógvistfræðingur og sérfræðingur hjá Landi og skógi, sem hefur um árabil kennt námskeið um sveppi og sveppatínslu. Til aðstoðar verður Margrét Guðbrandsdóttir, sem einnig hefur mikla þekkingu á sveppum.
Námskeiðið er eins dags fræðslu- og verklegt námskeið sem fer fram bæði innandyra og úti í náttúrunni. Þátttakendur fá leiðsögn við sveppagreiningu, söfnun og verkun sveppa auk þess að kynnast matreiðslu þeirra og smakka mismunandi tegundir.
Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri og hafa með sér sveppahníf eða vasahníf ásamt körfu eða kassa fyrir sveppasöfnun. Ekki er mælt með notkun plastpoka.
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru kennsla, leiðsögn, léttar kaffi- og hádegisveitingar ásamt sveppasmakki.
Athugið að aðeins eru 18 pláss í boði og fyrri námskeið hafa selst upp.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn6 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn6 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Markaðurinn5 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanYfir 166 þúsund krónur á mann fyrir veitingar á heimaleik Fulham
-
Frétt4 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt



