Vín, drykkir og keppni
Le Tribute Bransakvöld á Monkey’s & Kokteilbarnum á sunnudagskvöld
Líf og fjör verður á sunnudagskvöld þegar efnt verður til Le Tribute Bransakvölds á Monkey’s & Kokteilbarnum sunnudaginn 22. febrúar klukkan 20.00. Kvöldið er sérstaklega ætlað fólki í veitingageiranum og má búast við bæði góðri stemningu og spennandi tilboðum.
Yfirbarþjónn staðarins, Kaja Brodecka, hefur sett saman sérstakan Le Tribute kokteilaseðil fyrir kvöldið. Veitingamenn fá að njóta 2 fyrir 1 tilboðs af seðlinum og gefst þannig kærkomið tækifæri til að smakka og njóta kokteilanna í lifandi og notalegri stemningu.
Tónlistarmaðurinn DJ Símon FKNHNDSM sér um að halda uppi stemningunni og lofar kvöldinu þar sem dansgólfið verður í aðalhlutverki þegar líður á nóttina.
Fyrir þá sem vilja hefja kvöldið fyrr býður Monkey’s einnig upp á 2 fyrir 1 tilboð fyrir veitingamenn af smáréttaseðli og steikarseðli staðarins. Þar gefst gestum kostur á að gera sér glaðan dag yfir mat og drykk áður en kokteilarnir og tónlistin taka yfir.
Að kvöldinu standa Drykkur heildsala í samstarfi við Monkey’s & Kokteilbarinn og er markmiðið að skapa vettvang þar sem fagfólk í greininni getur hist, notið og átt saman góða stund.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Markaðurinn2 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanJapanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina




