Vín, drykkir og keppni
Starfsfólk veitingastaða boðið á BAR101 námskeið á Leynibarnum
Barþjónanámskeið verður haldið á Leynibarnum á Akureyri, við Hafnarstræti, fimmtudaginn 12. febrúar frá klukkan 19:30 til 22:00. Um er að ræða svokallað BAR101-námskeið sem ætlað er starfsfólki veitingastaða og er unnið í samstarfi við Barþjónaklúbb Íslands.
Farið verður yfir helstu grunnatriði barþjónustu, verklag og það sem skiptir máli í faglegri vinnu á bak við barborðið. Mekka Wines & Spirits stendur að námskeiðinu og mun Daníel Oddsson, fyrrverandi yfirbarþjónn á Jungle og núverandi starfsmaður fyrirtækisins, sitja fyrir svörum og veita innsýn í barsenuna í Reykjavík. Gestum gefst jafnframt kostur á að smakka úrval drykkja úr vörulínu Mekka Wines & Spirits.
Að kynningu lokinni verður efnt til hraðakeppni þar sem áhugasamir barþjónar keppa um að útbúa hinn klassíska Bacardi Daiquiri á sem skemmstum tíma. Sigurvegari kvöldsins fer ekki tómhentur heim.
Húsið opnar klukkan 19:30 með fordrykk og námskeiðið hefst klukkan 20:00. Áhugasamir geta skráð sig hér.
Aðstandendur vonast til að sjá sem flesta á Leynibarnum og eiga saman fræðandi og notalega kvöldstund.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt5 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg




